
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, formann Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra í síðdegisútvarpinu um nýjan aðgerðapakka flokksins í efnahagsmálum. Tillögurnar byggja á 6 samverkandi aðgerðum sem miða að því að lækka verðbólgu hratt og skapa forsendur fyrir lægri stýrivöxtum. Aðgerðirnar séu vel til þess fallnar að lækka verulega kostnað heimila og fyrirtækja. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þjóðarsátt og stöðugleiki í kjarasamningum
Í þættinum kom fram að Lilja setji samráð lykilaðila í forgang og leggur til að stjórnvöld, Seðlabanki Íslands, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins tryggi að forsendur kjarasamninga haldi. Markmiðið er að draga úr óvissu og styrkja verðbólguvæntingar með samstilltu átaki sem byggir á samvinnu fremur en einhliða aðgerðum.
Gjaldskrárstefna hins opinbera
Önnur meginbreyting snýr að opinberum gjöldum. Flokkurinn vill að ríki og sveitarfélög hætti hækkunum gjaldskráa og skatta umfram verðbólgumarkmið. Lilja bendir á að hækkanir á borð við 33% hækkun innritunargjalda í háskólum og aukin fasteignagjöld hafi aukið verðbólguþrýsting og dregið úr ráðstöfunartekjum heimila.
Verðbólgusía í lagasetningu
Þriðja aðgerðin er ný vinnuregla þar sem allar lagabreytingar og reglugerðir verða metnar með tilliti til verðbólguáhrifa. Ef fyrirhuguð aðgerð eykur verðbólgu verður hún ekki samþykkt en aðgerðir sem stuðla að stöðugleika fá framgang.
Lækkun matarskatts og eldsneytisgjalda
Framsókn leggur til tímabundna lækkun virðisaukaskatts á matvælum úr 11% í 7% sem á að lækka vísitölu neysluverðs um 0,5%. Þá er lagt til að eldsneyti verði fært í lægra virðisaukaskattsþrep og kolefnisgjald lækkað úr 27,15 krónum, sem gæti lækkað vísitöluna um 0,4% til viðbótar.
Leigumarkaður og húsnæðisliður
Síðasta aðgerðin beinist að húsnæðismarkaði. Flokkurinn vill draga til baka breytingar á skattlagningu leigutekna sem leiddu til hækkunar leiguverðs um rúm 5%. Þar sem húsnæðisliður vegur þungt í vísitölu. Telur Lilja að þessi breyting geti haft allt að 1% áhrif á verðbólgu.
Samverkandi áhrif og lægri vextir
Lilja segir að einstakar aðgerðir hafi takmörkuð áhrif einar og sér en saman geti þær lækkað verðbólgu niður í 3,9% á árinu og í 3% á næsta ári. Hún bendir á að lækkun stýrivaxta um 3% myndi spara ríkissjóði um 10 milljarða og heimilum um 20 milljarða í vaxtakostnaði.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
