
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra í síðdegisútvarpinu í dag, um fréttir þess efnis að stjórnvöld vestanhafs og ríki Evrópusambandsins hefðu hótað Íslandi tollum vegna hvalveiða. Guðlaugur sagði að á fundi utanríkismálanefndar Alþingis um morguninn hefði komið fram að engar slíkar hótanir hefðu borist. Hann sagði fréttir um hótanirnar vera falsfréttir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Engar hótanir hafa borist
Frétt hafði birst, meðal annars ítrekað á RÚV og Vísi um að stjórnvöld vestanhafs hefðu hótað að leggja tolla á íslenskan innflutning yrði hvalveiðum haldið áfram og sambærilegar hótanir hefðu borist frá ríkjum Evrópusambandsins.
Guðlaugur sagði málið hafa verið tekið fyrir á fundi utanríkismálanefndar um morguninn. Þar hefði komið fram að fréttirnar ættu ekki við rök að styðjast.
Hann var afdráttarlaus um niðurstöðuna og sagði engar hótanir hafa borist. Málið hefði verið fyfir farið í nefndinni og ekkert nýtt væri komið fram gagnvart Íslandi vegna hvalveiðanna.
Ekki vitað hvaða “heimildir” séu sagðar á bak við fréttina – óskað eftir að utanríkisráðherra leiðrétti fréttina
Fréttin hefði verið sögð byggjast á upplýsingum frá heimildarmanni og Guðlaugur sagðist ekki vita á hvaða forsendum hún hefði verið skrifuð. Framsetningin hefði vakið athygli margra þar sem talað hefði verið um hótanir vestanhafs og jafnframt frá Evrópusambandinu. Fréttin hefði ítrekað verið sögð i fréttatímum RÚV og sömuleiðis á Vísi.is
Guðlaugur sagði utanríkismálanefnd hafa óskað eftir því að ráðherra leiðrétti málið svo almenningur hefði réttar upplýsingar.
Aldrei komið upp þegar Guðlaugur var utanríkisráðherra
Guðlaugur sagði vel þekkt að stjórnmálamenn í ýmsum löndum væru andvígir hvalveiðum. Það væri hins vegar allt annað en að stjórnvöld hefðu nú hótað Íslandi tollum eða öðrum viðskiptaaðgerðum.
Hann sagðist ekki muna eftir að hvalveiðar hefðu nokkurn tíma verið teknar upp við sig á meðan hann gegndi embætti utanríkisráðherra. Hann hefði setið hundruð, ef ekki þúsundir funda, án þess að málið kæmi upp með þeim hætti. Þess vegna hefði fréttin um tollahótanirnar komið honum mjög á óvart.
Telur rökin gegn hvalveiðum veik
Guðlaugur ræddi einnig afstöðu sína til hvalveiða og sagðist eiga erfitt með að skilja efnisleg rök fyrir því að vera andvígur veiðum á hvölum en samþykkja veiðar eða slátrun annarra spendýra.
Hann benti á að ekki væri um ofveiði að ræða hér á landi og að þær tegundir sem væru veiddar væru ekki í útrýmingarhættu. Ef siðferðileg afstaða væri sú að ekki ætti að veiða eða slátra dýrum taldi hann að verksmiðjubúskapur hlyti einnig að vekja alvarlegar spurningar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
