
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu í þættinum Fréttir vikunnar í dag, um fyrstu aðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, þar sem þegar hefur verið ráðist í niðurskurð á stjórnsýslu borgarinnar og boðaðar breytingar á nokkrum umdeildum málum. Umræðan snerist meðal annars um fækkun stöðugilda á skrifstofum borgarinnar, lokun Mannréttindaskrifstofunnar, endurskoðun á bensínstöðvalóðum og Braggamálinu, auk þess sem rifjaðar voru upp þær árásir sem Vigdís Hauksdóttir sætti þegar hún vakti athygli á spillingarmálum sem nú eru aftur komin til skoðunar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Hraðar breytingar á stjórnsýslu borgarinnar
Í þættinum kom fram að Hildur Björnsdóttur borgarstjóri hafi hafið kjörtímabilið af miklum krafti með 100 daga áætlun sem legði áherslu á að draga úr umsvifum stjórnsýslunnar. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér að skera verulega niður á skrifstofu borgarstjóra og endurskoða starfsemi sem hefði vaxið frá úr hófi á undanförnum árum.
Að mati Arnþrúðar og Péturs hefðu viðbrögð við þessum aðgerðum verið jákvæðari en margir hefðu búist við. Þau sögðu breytingarnar endurspegla vilja til að einfalda stjórnsýsluna og beina fjármunum í auknum mæli að grunnþjónustu borgarinnar.
Mannréttindaskrifstofan, bensínstöðvalóðir og Braggamálið
Einnig var fjallað um lokun Mannréttindaskrifstofunnar. Fram kom að skrifstofan hafi með tímanum fjarlægst upphaflegt hlutverk sitt og þróast yfir í „wokeskrifstofu“, þar sem hugmyndafræðileg verkefni hefðu fengið meira vægi en hefðbundin mannréttindamál. Þau bentu jafnframt á að ríkið starfrækti þegar sérstaka mannréttindastofnun og því væri eðlilegt að endurskoða þörfina fyrir sams konar starfsemi hjá Reykjavíkurborg.
Jafnframt var fjallað um endurskoðun samninga um bensínstöðvalóðir. Mikilvægt væri að kanna hvort borgin hefði fengið fullt endurgjald fyrir verðmætar lóðir sem hefðu verið teknar undir aðra uppbyggingu og hvort fjárhagslegir hagsmunir borgarbúa hefðu verið nægilega tryggðir. Þetta hefði verið ” frægt” mál í borgarstjórnartíð Dags B. Eggertssonar.
Braggamálið bar einnig á góma. Arnþrúður og Pétur töldu nauðsynlegt að fara yfir hvernig framkvæmd sem upphaflega átti að vera hófleg hefði þróast í eitt umdeildasta framkvæmdamál borgarinnar vegna mikillar kostnaðaraukningar og ákvarðana sem teknar voru á framkvæmdatímanum. Það hefði sömuleiðis verið ” frægt ” mál Dags B. Eggertssonar þáverandi borgarstjóra.
Vigdís Hauksdóttir vakti athygli á málunum
Þá var rifjað upp að Vigdís Hauksdóttir þáverandi borgarfulltrúi hefði um árabil bent á Braggamálið, bensínstöðvalóðirnar og önnur borgarmál sem hún taldi bera merki um óeðlilega stjórnsýslu og spillingu. Samhliða þeirri umfjöllun hefði hún sætt hörðum persónulegum árásum og það eitt og sér væri verðugt rannsóknarefni.
Mörg þeirra mála sem Vigdís Hauksdóttir hefði vakið athygli á væru nú aftur komin á dagskrá með nýjum meirihluta og væri ljóst að Vigdís hefði sannarlega verið að benda á alvarlegar misfellur í starfi þáverandi borgarsjtórnar. Mikilvægt væri að yfirfara eldri ákvarðanir, skýra hvernig þeim var háttað og tryggja að meðferð opinbers fjár standist kröfur um gagnsæi og ábyrga stjórnsýslu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
