Fréttir vikunnar: Efast um nýtt náttúru-og innviðagjald á Suðurlandi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, lögmann og fyrrverandi alþingismann, og Guðbjörn Jónsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara, í Fréttum vikunnar á Útvarpi Sögu, um fyrirhugað náttúru- og innviðagjald á Suðurlandi. Guðbjörn dró í efa að gjaldtakan myndi dreifa ferðamönnum um landið og sagði erfitt að stýra því hvaða náttúruperlur þeir kysu að heimsækja. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Gjaldtaka breytir ekki endilega ferðavenjum

Guðbjörn, sem hefur starfað í ferðaþjónustu og verið leiðsögumaður í um 15 ár, taldi óraunhæft að stjórnvöld gætu stýrt því hvaða náttúruperlur ferðamenn heimsæktu. Hann nefndi Gullfoss, Geysi og Mývatn sem dæmi um áfangastaði sem fólk veldi sjálft að skoða.

Brynjar benti á að gjaldtaka á tilteknum svæðum gerði þau dýrari en aðra áfangastaði. Guðbjörn dró hins vegar í efa að verðmunurinn nægði til að breyta ferðavenjum fólks og taldi nauðsynlegt að fara varlega í slíkar aðgerðir.

Ráðherra vill fækka ferðamönnum á Suðurlandi

Arnþrúður vísaði til frásagna af fundi Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra á Suðurlandi. Samkvæmt þeim hefði ráðherrann lýst því yfir að hann vildi fækka ferðamönnum á svæðinu.

Hún spurði hvort markmið ráðherrans væri fremur að dreifa ferðamönnum betur um landið. Brynjar tók undir að það væri líklegri skýring og nefndi fyrirhugaða gjaldtöku „Bláskógabyggðarskattinn“.

Ný gjaldtaka áður en fyrri ákvarðanir eru fullmótaðar

Guðbjörn gagnrýndi að stjórnvöld hygðust taka upp nýja gjaldtöku áður en fullnægjandi niðurstaða hefði náðst um fyrirkomulag bílastæðagjalda við ferðamannastaði.

Hann taldi ákvarðanatökuna einkennast af óstöðugleika. Stjórnvöld frestuðu ákvörðunum um langa hríð en kynntu síðan nýjar aðgerðir og breyttu jafnvel stefnunni skömmu síðar.

Að hans mati væri mikilvægt að vanda undirbúninginn enda væri óvíst hvort gjaldtakan skilaði þeim árangri að dreifa ferðamönnum betur um landið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila