
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara í Fréttum vikunnar þar sem meðal annars var fjallað um nýleg fíkniefnamál, umfang fíkniefnaneyslu á Íslandi og þær aðferðir sem notaðar eru við smygl til landsins. Einnig var rætt um árangur tollgæslu og lögreglu í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Haldlagningar benda til mikillar neyslu
Nýlegt kókaínmál var meðal þess sem tekið var fyrir í þættinum. Guðbjörn sagði umfang þeirra haldlagninga sem komið hafa upp á undanförnum árum gefa sterkar vísbendingar um hversu mikil neysla fíkniefna sé í landinu. Hann benti á að í nýjustu málunum væri um að ræða tugi kílóa af kókaíni og taldi óraunhæft að slíkt magn væri flutt til landsins nema fyrir hendi væri stór markaður. Að hans mati gera margir sér ekki grein fyrir hversu umfangsmikil neyslan sé í raun og veru.
Flugmaður SAS mættir í vinnu undir áhrifum kókaíns
Aðspurður sagði Guðbjörn að fíkniefnaneysla væri útbreiddari en margir vildu viðurkenna og vandinn næði langt út fyrir hefðbundnar staðalmyndir um neytendur. Í því samhengi var meðal annars vísað til frétta af flugmanni hjá SAS sem mætti í flug undir áhrifum kókaíns sem leiddi til þess að það þurfti að aflýsa fluginu. Slík mál sýndu að neysla ólöglegra fíkniefna gæti komið fyrir í fjölbreyttum starfsgreinum og samfélagshópum.
Fíkniefni falin í sérútbúnum hólfum
Farið var yfir þær aðferðir sem smyglarar beita til að koma fíkniefnum til landsins. Guðbjörn sagði vel þekkt að fíkniefni væru falin í sérútbúnum hólfum í ökutækjum, ferðatöskum og öðrum flutningsbúnaði. Hann sagði að þeir sem starfa við landamæraeftirlit þyrftu stöðugt að laga sig að nýjum aðferðum skipulagðra brotahópa sem leituðu sífellt nýrra leiða til að komast fram hjá eftirliti.
Tollgæsla og lögregla náð góðum árangri
Guðbjörn rifjaði upp reynslu sína úr tollgæslunni og sagði íslensk yfirvöld hafa náð umtalsverðum árangri í baráttunni gegn fíkniefnasmygli. Hann lýsti sérstaklega góðu samstarfi tollgæslu og lögreglu og sagði íslenska tollgæslu hafa notið virðingar meðal samstarfsaðila erlendis fyrir árvekni og fagleg vinnubrögð. Að hans mati sýna fjölmörg stór mál undanfarinna ára að eftirlitið hafi ítrekað komið í veg fyrir að mikið magn fíkniefna kæmist á markað hér á landi. Arnþrúður var sammála Guðbirni en hún starfaði sjálf í fíkniefnalögreglunni á sínum tíma.
Ísland eftirsóttur markaður fyrir smyglara
Að mati Guðbjörns skýrist umfang smyglsins meðal annars af því að hátt verð fæst fyrir fíkniefni á íslenskum markaði. Hann taldi að þar lægju miklir fjárhagslegir hagsmunir að baki og eftirspurnin væri enn veruleg þrátt fyrir aukna umræðu um skaðsemi fíkniefna. Hann sagði að umfang haldlagninga undanfarinna ára sýndi að skipulögð brotastarfsemi sæi áfram tækifæri á íslenskum markaði og baráttan gegn innflutningi fíkniefna yrði því áfram mikilvægt verkefni lögreglu og tollgæslu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
