
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar, í Fréttum vikunnar um hvalveiðar og áhrif þeirra á vistkerfi hafsins. Sigurjón sagði hvalveiðar hafa mikilvægt vísindalegt gildi og taldi afstöðu Evrópusambandsins til þeirra meðal helstu ástæðna þess að hann hygðist greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum Íslands við ESB. Hann ætlaði að segja Nei. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þörf á meiri þekkingu á hlutverki hvala
Í þættinum var fjallað um þau áhrif sem hvalir hefðu á vistkerfi hafsins og hvort næg þekking lægi fyrir um fæðu þeirra og samspil við fiskistofna.
Sigurjón sagði mikilvægt að rannsaka hvali sem hluta af heildstæðu vistkerfi en ekki sem einangraða dýrategund. Hann taldi meiri vísindarannsóknir nauðsynlegar til að fá skýrari mynd af orkuflæði hafsins og því hvernig mismunandi tegundir hefðu áhrif hver á aðra.
Bendir á mikla fæðuneyslu hvala
Í umræðunni var vísað til samantekta Hafrannsóknastofnunar um fæðu hvala. Sigurjón sagði þær benda til að hvalir neyttu árlega gríðarlegs magns af fiski og taldi mikilvægt að slíkar upplýsingar væru hluti af umræðunni um nýtingu auðlinda hafsins.
Hann lagði þó áherslu á að ekki mætti draga þá ályktun að fækkun hvala myndi sjálfkrafa leiða til stærri fiskistofna. Að hans mati þyrfti að skoða samspil allra tegunda í vistkerfinu, enda gætu margir aðrir þættir haft áhrif á þróun fiskistofna en veiðar einar og sér.
bandið
Segir Evrópusambandið þrengja að hvalveiðum
Pétur beindi því næst umræðunni að Evrópusambandinu og benti á að andstaða við hvalveiðar væri víða rík innan ESB. Hann velti því upp hvaða áhrif aðild Íslands gæti haft á möguleika landsins til að halda veiðunum áfram.
Sigurjón sagði þróunina innan Evrópusambandsins sýna að þrýstingur væri þar í átt að frekari takmörkunum á hvalveiðum. Hann sagði það vera eina af meginástæðum þess að hann hygðist segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður og taldi mikilvægt að Ísland héldi sjálfstæðu forræði yfir nýtingu auðlinda hafsins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
