
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu í þættinum Fréttir vikunnar um fyrirhugaða komu umhverfisaktívistans Paul Watson til Íslands í tengslum við hvalveiðar sem nú standa yfir. Í umræðunni var farið yfir fyrri skemmdarverk hans gegn hvalveiðiskipum, möguleg viðbrögð íslenskra stjórnvalda og hvort Ísland ætti að verða við framsalsbeiðni frá Japan ef tilefni skapaðist. Jafnframt sögðu þau mótmæli gegn hvalveiðum í auknum mæli hafa þróast yfir í fjáröflunarstarfsemi þar sem sýnilegar aðgerðir væru hluti af auglýsingastarfsemi fyrir slíkan rekstur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Stjórnvöld þurfa að vera við öllu búin
Í þættinum kom fram að Paul Watson hefði um áratugaskeið verið einn þekktasti andstæðingur hvalveiða í heiminum og ítrekað reynt að stöðva hvalveiðar með beinum aðgerðum á sjó. Hann hefði sökkt hvalskipum Hvals í Reykjavíkurhöfn 1986 og hygðist nú halda áfram skemmdarverkum hér á landi. Arnþrúður sagði að fyrirhuguð koma hans til Íslands kallaði á að Landhelgisgæslan og lögregla fylgdust náið með stöðunni og tryggðu að lögmæt atvinnustarfsemi yrði ekki fyrir truflunum af hans hálfu.
Mótmæli gegn hvalveiðum orðin að fjáröflunartæki
Arnþrúður sagði andstöðu við hvalveiðar í auknum mæli hafa þróast yfir í skipulagða starfsemi þar sem mótmæli og beinar aðgerðir væru hluti af fjáröflun. Margir aðgerðasinnar hafi fjárhagslegra hagsmuna að gæta af því að halda átökum um hvalveiðar gangandi, enda auki það sýnileika þeirra og möguleika á að afla styrkja og annarra framlaga.
Í því sambandi rifjuðu þau upp fyrri mótmæli hér á landi þar sem aðgerðasinnar hefðu meðal annars klifrað um borð í hvalveiðiskip og efnt til hungurverkfalla. Þar á meðal hefðu verið 2 konur sem hefðu nú þegar hlotið dóm fyrir athæfið. Tilgangurinn væri því ekki eingöngu að mótmæla hvalveiðum heldur einnig að viðhalda starfsemi sem byggðist á stöðugri athygli og fjármögnun.
Rætt um framsal Watson til Japan
Arnþrúður og Pétur rifjuðu upp að Watson hefði áður verið handtekinn á Grænlandi á síðasta ári, á grundvelli alþjóðlegrar framsalsbeiðni frá Japan vegna aðgerða hans gegn japönskum hvalveiðum. Hann hefði setið lengi í varðhaldi á Grænlandi og grænlensk yfirvöld hafi viljað framselja hann til Japan en Dönsk yfirvöld hefðu á síðustu mínútu stöðvað framsalið og komið i veg fyrir að Grænlendingar hefðu framselt hann til Japan.
Þau sögðu að ef Watson bryti íslensk lög eða reyndi að hindra lögmætar hvalveiðar ættu íslensk stjórnvöld að bregðast við af festu. Að þeirra mati ætti Ísland jafnframt að verða við framsalsbeiðni frá Japan.
Lögleg starfsemi sem þarf að gæta að geti farið fram ótrufluð
Arnþrúður og Pétur sögðu mikilvægt að íslensk stjórnvöld tryggðu að lögmæt atvinnustarfsemi gæti farið fram án ólögmætra afskipta. Að þeirra mati ættu yfirvöld að bregðast ákveðið við öllum tilraunum til að trufla hvalveiðar og beita þeim úrræðum sem lög heimiluðu enda ættu allir að vera jafnir fyrir lögum. það væti rétt að verða við framsali á Watson ef japönsk stjórnvöld óska eftir því.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
