Fréttir vikunnar: Núverandi einkunnakerfi felur raunverulegan námsárangur

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Ingvar Smára Birgisson, lögmann hjá Firma lögmönnum og stjórnarmann RÚV í þættinum Fréttir vikunnar, um breytingar Ingu Sæland mennta -og barnamálaráðherra á einkunnagjöf í grunnskólum og stöðu menntamála. Þar kom fram að bókstafaeinkunnir, eins og nú er viðhaft, gefi villandi mynd af námsárangri. Tölueinkunnir veiti skýrari upplýsingar og nemendur og foreldrar þeirra viti betur um námsframvindu. Víðtækari vandi sé til staðar í menntakerfinu, meðal annars í lestrarfærni og skipulagi náms. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Bókstafaeinkunnir ná yfir of breitt bil

Ingvar sagði að núverandi kerfi með bókstafaeinkunnum geri foreldrum og nemendum erfitt fyrir að átta sig á stöðu í námi. Arnþrúður benti á að einkunnin B geti náð yfir mjög breitt bil, frá 3,5 upp í 8,5 í einkunn sem þýði að nemendur með verulega ólíka getu fái sömu niðurstöðu. Ingvar sagði að þetta fyrirkomulag geri það að verkum að hvorki foreldrar né nemendur hafi skýra mynd af því hvort árangur sé góður eða slakur. Kerfið feli þannig raunverulegan mun á frammistöðu.

Sammála Ingu Sæland um tölueinkunnir

Ingvar lýsti stuðningi við breytingar Ingu Sæland, um að taka upp tölueinkunnir. Hann sagði að slíkt kerfi geri kleift að greina betur á milli árangurs og gefi bæði nemendum og foreldrum raunhæfari upplýsingar. Hann sagði að reynsla hans sem foreldris staðfesti að núverandi kerfi væri óskiljanlegt í framkvæmd og breytingin bæti upplýsingagjöf um námsstöðu.

Lestrarfærni og breyttar aðstæður nemenda

Í umræðunni kom fram að lestrarfærni nemenda hafi dalað þrátt fyrir mikla fjármuni í skólakerfið. Ingvar sagði að hluti skýringarinnar væri breytt hegðun barna, þar sem lestur til ánægju hefði dregist saman á sama tíma og skjánotkun hefði aukist. Hann benti einnig á að hlutfall nemenda með annað móðurmál en íslensku hafi aukist og það hafi áhrif á námsárangur í grunnskólum. Þetta væri raunveruleg breyta sem þyrfti að taka mið af í mati á stöðunni.

Stefna um að jafna mun milli nemenda

Ingvar sagði að þróun síðustu áratuga í menntamálum, hafi beinst að því að draga úr aðgreiningu milli nemenda og jafna stöðu þeirra. Hann taldi að sú stefna hefði haft áhrif á hvernig árangur væri metinn og birtur. Breytingar á einkunnakerfi væru hluti af stærri umræðu um skipulag menntakerfisins og þörf væri á skýrari mælikvörðum á árangur.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila