
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar, í Fréttum vikunnar um aðgerðir Paul Watson og áhafnar Bandero gegn íslenskum hvalveiðum. Umræðan snerist um hvernig íslensk stjórnvöld ættu að bregðast við, hvaða skilaboð ætti að senda til þeirra sem reyndu að stöðva hvalveiðar og hvernig koma mætti í veg fyrir að aðgerðirnar yrðu notaðar til að afla samtökunum aukinnar athygli og stuðnings. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vilja skýr viðbrögð við aðgerðum á sjó
Arnþrúður hóf umræðuna á atburðarásinni í kringum Bandero og benti á að skipið hefði farið inn fyrir íslenska landhelgi. Hún velti þeirri spurningu því upp hvaða skilaboð Ísland ætti að senda frá sér eftir að skipstjórinn var handtekinn ásamt áhöfn.
Pétur rifjaði upp reynslu Færeyinga af sambærilegum mótmælum og taldi að ákveðin viðbrögð þar hefðu orðið til þess að slíkum aðgerðum var ekki haldið áfram. Hann lagði áherslu á að stjórnvöld sýndu með skýrum hætti að ekki yrði liðið að því að stofna öryggi sjómanna eða lögmætum atvinnuvegum í hættu.
Sigurjón tók undir að lögum yrði að framfylgja en sagði jafnframt að gæta yrði þess að viðbrögðin þjónuðu ekki markmiðum Paul Watson og samtaka hans. Það ætti ekki að gera hann að fórnarlambi sagði Sigurjón.
Athyglin í fjölmiðlum hluti af baráttunni
Þegar umræðan beindist að tilgangi aðgerðanna benti Arnþrúður á að Paul Watson væri þekktur fyrir að byggja baráttu sína á áberandi mótmælum.
Sigurjón taldi að einmitt sú athygli væri stór hluti af markmiðinu. Að hans mati snerist baráttan ekki eingöngu um hvalveiðar heldur einnig um að skapa umræðu sem gæti aukið fjárstuðning og fylgi við samtökin. Því væri skynsamlegt að láta lögbundna málsmeðferð ganga sinn gang án þess að blása málið frekar upp í fjöllmiðlum en nauðsyn bæri til.
Fær tölvupósta þar sem spurt er út í kostnaðinn
Í umræðunni kom einnig fram að Sigurjón sem formaður fjárlaganefndar Alþingis hefði fengið hundruð tölvupósta erlendis frá þar sem spurt væri um kostnað íslenska ríkisins vegna aðgerðanna. Arnþrúður benti á að líklega væri þar um að ræða einstaklinga sem gætu nýtt sér þær upplýsingar í áróðurstilgangi en Sigurjón taldi hann endurspegla þann alþjóðlega stuðning sem andstæðingar hvalveiða hefðu byggt upp. Hann sagðist ekki svara þessum tölvupóstum.
Íslensk stjórnvöld ættu hins vegar umfram allt að halda áfram að framfylgja lögum af festu, tryggja öryggi þeirra sem stunda hvalveiðar og forðast að gera málið að áróðursvinningi fyrir þá sem stæðu að mótmælunum. Arnþrúður sagði að það ætti enginn að vanmeta kraft Georgs Lárussonar forstjóra Landhelgisgæslunnar sem væri að taka á þessu ástandi sem fylgir Bandero.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
