
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Helga Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknara og lögmann, í Fréttum vikunnar um þær breytingar sem orðið hafa á íslenskri brotastarfsemi síðustu 10–15 ár. Helgi sagði skipulagða brotastarfsemi hafa aukist verulega, glæpahópa orðið grimmari og starfsemina mun hættulegri en þá brotastarfsemi sem Íslendingar hafi lengst af átt að venjast. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Glæpastarfsemin orðin skipulagðari
Arnþrúður spurði Helga hvað hefði breyst mest í íslenskri glæpastarfsemi síðustu 10–15 ár. Hann sagði stærstu breytinguna vera skipulagið sem komið væri á starfsemina.
Fyrir 15–20 árum hefði skipulögð brotastarfsemi varla verið þekkt á Íslandi en nú væru hér nokkuð margir hópar. Skipulagið gerði starfsemina árangursríkari hvort sem um væri að ræða innflutning fíkniefna, mansal eða aðra brotastarfsemi.
Helgi sagði erlendar glæpaklíkur, þar á meðal albönsk glæpasamtök, hafa sýnt mun meiri grimmd en íslenskir brotamenn sem samfélagið hefði áður þekkt. Hann vísaði meðal annars til mafíutengdrar aftöku hér á landi og þróunarinnar í Svíþjóð þar sem fólk væri skotið á götum úti og ráðist á fjölskyldur glæpamanna í hefndarskyni.
Arnþrúður benti jafnframt á að ungir krakkar og unglingar væru í auknum mæli notaðir til að fremja glæpi, eins og þekkt væri frá Svíþjóð og Danmörku. Helgi sagði þetta þekkta aðferðafræði skipulagðra glæpasamtaka og verið væri að reyna að bregðast við henni með breytingum á löggjöf.
Önnur tegund brotastarfsemi en áður
Helgi sagði íslenskt samfélag lengi hafa verið tiltölulega saklaust þegar kæmi að alvarlegri og skipulagðri brotastarfsemi. Brotamenn hefðu oft verið einstaklingar í neyslu sem fjármögnuðu fíkn sína með innbrotum, ránum eða fíkniefnainnflutningi.
Þegar brotastarfsemin væri hins vegar skipulögð, útreiknuð og stunduð í ágóðaskyni breyttist myndin verulega. Þá kæmu einnig til tengsl við glæpasamtök erlendis.
Hann nefndi sem dæmi fréttir um að kveikt hefði verið í bíl lögreglumanns og að maður með tengsl við erlenda glæpaklíku hefði verið fenginn til verksins. Helgi tók fram að hann þekkti málið ekki persónulega en sagði slíkt sýna brotastarfsemi af allt öðrum toga en Íslendingar hefðu vanist.
Við þessu þyrfti að bregðast hart og í samræmi við tilefnið.
Mikill markaður fyrir fíkniefni á Íslandi
Arnþrúður spurði einnig hversu miklu máli skipti að Ísland virtist í auknum mæli vera orðið markaður eða millistöð alþjóðlegra fíkniefnasmyglara. Hún vísaði til stórra fíkniefnamála og þess hversu mikið magn væri flutt til landsins.
Helgi sagði ekki mega gleyma því að hluti skipulagðrar brotastarfsemi væri íslenskur. Mikill hluti fíkniefnanna væri að hans mati ætlaður til neyslu hér á landi enda væri mikil kaupgeta á Íslandi og peningar til að greiða fyrir efnin. Það væri meðal þess sem héldi starfseminni gangandi.
Arnþrúður vakti þá athygli á mannfallinu sem fylgdi fíkniefnamarkaðnum og sagði sífellt sjást ungt fólk í dánartilkynningum.
Helgi sagði dauðsföllin og þann mannlífsharmleik sem fíkniefnaneysla hefði í för með sér vera meginrök fyrir baráttunni gegn sölu og neyslu fíkniefna. Fjölskyldur horfðu á börnin sín lenda á götunni án þess að geta ráðið við ástandið. Hann sagði lögregluna jafnframt lengi hafa verið vanfjármagnaða og ekki hafa þau tæki og úrræði sem hún vildi hafa til að vinna gegn þessari starfsemi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
