Fréttir vikunnar: Stjórnarskráin bannar framsal ríkisvalds til Evrópusambandsins

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Björn Þorra Viktorsson, hæstaréttarlögmann í þættinum Fréttir vikunnar, um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í þættinum var meðal annars fjallað um hraða málsins, leynd í kringum gögn utanríkisráðuneytisins og þá stefnu stjórnvalda að halda því fram að innganga í Evrópusambandið styrki fullveldi Íslands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Leyniskjöl um Evrópumál falin almenningi

Björn Þorri sagði óásættanlegt að umfangsmikil gögn og skjöl sem tengjast Evrópumálum hefðu verið flokkuð sem trúnaðargögn og ekki lögð fram opinberlega áður en þjóðin ætti að taka afstöðu til málsins. Hann sagði almenning og þingmenn ekki hafa fengið allar upplýsingar um samskipti stjórnvalda við erlenda aðila og undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Leyndin í ESB málinu minnir á Icesave- málið

Í þættinum var bent á að um væri að ræða eitt stærsta fullveldis- og stjórnskipunarmál Íslands og því væri óeðlilegt að þjóðin ætti að greiða atkvæði án þess að allar upplýsingar lægju fyrir. Málið var borið saman við Icesave-deiluna þegar þingmenn fengu aðeins aðgang að ákveðnum gögnum við ströng skilyrði og máttu ekki ræða efni þeirra opinberlega.

Björn Þorri sagði slíkt fyrirkomulag grafa undan lýðræðinu og gera almenningi erfiðara fyrir að mynda sér upplýsta afstöðu áður en kosið yrði um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu.

Framsal ríkisvalds brýtur gegn stjórnarskránni

Björn Þorri benti á að íslenska stjórnarskráin banni að ríkisvald væri framselt úr landi nema með breytingum á stjórnarskránni sjálfri. Fullveldi Íslands felist í því að löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald væru í höndum íslenskra stjórnvalda og íslensku þjóðarinnar. Innganga í Evrópusambandið myndi hins vegar færa hluta þess valds til stofnana sambandsins í Brussel.

Einnig var rætt um þá orðræðu að Ísland gæti „varið fullveldið“ með inngöngu í Evrópusambandið. Björn Þorri sagði slíkt ganga gegn sjálfri merkingu fullveldis þar sem aðild fæli í sér að ákvarðanir um stór mál yrðu í auknum mæli teknar utan Íslands.

Framkvæmdastjórn ESB fer með raunverulegt vald innan ESB

Björn Þorri sagði almenningi oft gefna þá mynd að Evrópuþingið færi með megnið af valdinu innan Evrópusambandsins en í raun væru stærstu ákvarðanir teknar af framkvæmdastjórn sambandsins í Brussel.

Fram kom í þættinum að framkvæmdastjórnin væri ekki kjörin með beinum hætti af almenningi og sífellt meira vald hefði færst frá einstökum þjóðríkjum til miðlægra stofnana sambandsins. Að hans sögn væri Evrópusambandið í stöðugri þróun í átt að meiri samþættingu og aukinni miðstýringu.

Þá kom fram að umræðan á Íslandi einkennist of mikið af slagorðum um stöðugleika og samstarf en of lítið sé rætt um lagalegar, stjórnskipulegar og lýðræðislegar afleiðingar þess að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila