Fréttir vikunnar: Þorgerður Katrín hefði átt að taka pokann sinn

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Helga Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknara og lögmann, í Fréttum vikunnar, um hugmyndir um þátttöku Íslands í drónaframleiðslu með Úkraínu og stefnu stjórnvalda gagnvart stríðinu. Helgi gagnrýndi Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra harðlega, sagði framgöngu hennar ekki traustvekjandi og hún hefði átt að taka pokann sinn eftir það sem undan væri gengið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kann ekki við hugmyndir um vopnaframleiðslu

Arnþrúður spurði Helga hvernig honum litist á fréttir um hugmyndir þess efnis að Íslendingar tækju þátt í einhvers konar vopnaframleiðslu, með Úkraínumönnum eins og komið hefði fram í úkraínskum fjölmiðlum.

Helgi sagðist ekki kunna við þá hugsun. Ísland hefði lengi litið á sig sem friðsæla þjóð og þátttaka í vopnaframleiðslu kallaði því á grundvallarumræðu um þá stefnu sem landið ætlaði að fylgja.

Hann sagði þátttöku í vopnaframleiðslu vera siðferðilega spurningu og hið sama gilti um það hvort Ísland ætti að leggja milljarða króna til stríðsins í Úkraínu.

Spyr hvort utanríkisráðherra reki eigin stefnu

Helgi gagnrýndi einnig framgöngu Þorgerðar Katrínar í utanríkismálum og vísaði meðal annars til yfirlýsinga og upplýsinga frá Brussel í kringum þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann sagði að ekki hefði verið hægt að staðfesta.

Hann spurði hvað hefði eiginlega farið fram varðandi hugmyndirnar um vopnaframleiðslu og hvort utanríkisráðherra væri með eigin utanríkisstefnu.

Helgi sagði þetta ekki traustvekjandi og bætti við að hann teldi að Þorgerður Katrín hefði átt „að taka pokann sinn eftir það sem undan er gengið“.

Friðarþjóð eigi að tala fyrir friði

Helgi gagnrýndi jafnframt þá stefnu að Ísland legði fé til áframhaldandi stríðsreksturs. Hann sagði ekki liggja fyrir í hvað allt það fé sem sent hefði verið til Úkraínu hefði farið, þótt hluti þess kynni að hafa nýst særðum hermönnum eða hersjúkrahúsum.

Hann rifjaði upp fyrirlestur um Laxdælu þar sem fjallað hefði verið um konur sögunnar sem hvöttu syni, eiginmenn og bræður til átaka. Helgi sagði þá samlíkingu hafa komið upp í hugann þegar hann horfði á íslenska stjórnmálamenn styðja áframhaldandi stríðsrekstur þar sem ungir úkraínskir og rússneskir hermenn dræpu hver annan.

Hann sagði að ef Ísland ætlaði að halda því fram að það væri friðelskandi þjóð ætti landið að tala fyrir því að stríðinu lyki fremur en að hvetja til áframhaldandi átaka.

Vill breyta um stefnu

Helgi sagði sér vera sama þótt Rússar fengju hluta Donetsk ef það yrði til þess að stöðva drápin, eyðileggingu innviða og áhrif stríðsins á olíumarkaði heimsins.

Hann gagnrýndi jafnframt það sem hann kallaði hræðsluáróður um að Rússar myndu ráðast inn í fleiri ríki og sagði að þeir hefðu nóg með stríðið í Úkraínu.

Að hans sögn væri ekki rétt að halda áfram að senda peninga og styðja stríð sem leiddi til þess að ungir menn dræpu hver annan. Ísland þyrfti að breyta um stefnu og leggja meiri áherslu á frið.

Helgi tók þó fram að hann væri ekki á móti nýsköpun eða drónatækni sem slíkri. Drónar gætu jafnvel nýst Íslandi til eigin varna ef á þyrfti að halda.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila