Fréttir vikunnar: Trúnaðargögn leka úr ráðuneytum til RÚV

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Arnar Þór Jónsson, lögmann og fyrrverandi héraðsdómara í Fréttum vikunnar, um meðferð upplýsinga innan ráðuneyta og fréttaflutning RÚV. Í þættinum kom fram að RÚV hefði í frétt um símtal Donalds Trump og Bjarna Benediktssonar þáverandi utanríkisráðherra byggt á upplýsingum sem sagðar voru koma úr minnispunktum innan ráðuneytisins. Arnþrúður rifjaði í því samhengi upp mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra þar sem gögn úr Forsætisráðuneytinu láku beint til RÚV. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Minnispunktar innan ráðuneytisins lágu að baki upplýsingunum

Arnþrúður rifjaði upp símtal Donalds Trump og Bjarna Benediktssonar. Í símtalinu hafi Trump meðal annars hafa beðið Bjarna að skila góðri kveðju til íslensku þjóðarinnar og hafi það orðið að frétt á þeim tíma og komið til almannavitundar. Trump hafði þá ekki tekið við embætti forseta Bandaríkjanna.

RÚV hafi birt fréttir af þessu símtali nú í vikunni eða tæplega 2 árum eftir að samtalið átti sér stað. RUV segist nú hafa undir höndum upplýsingar sem sagðar eru byggjast á minnispunktum innan ráðuneytis um símtalið en upplýsingarnar snerust um að Trump á að hafa viðrað þá hugmynd við Bjarna að Ísland gerðist 51 ríki Bandaríkjanna. Bjarni Benediktsson fyrrverandi forsætisráðherra hefur ekki bætt neinu við upphaflegu fréttina og hafi þar komið fram að þeir hefðu áttu ánægjulegt samtal og Trump hafi beðið fyrir kveðjur til Íslendinga.

Trúnaðargögn beint til RÚV að þeirra eigin sögn

Arnþrúður spurði hvernig slík gögn komust út úr ráðuneyti og í hendur fréttamanna hjá RUV. Um trúnaðargögn að væri að ræða sem hefðu orðið til þegar samtalið var skráð innan stjórnkerfisins eða svo hefði verið sagt í frétt RUV en ekkert hefur fengist staðfest hjá stjórnvöldum hvort sú frásögn RUV væri sönn.

Gögn runnu beint til RÚV í máli Ásthildar Lóu

Arnþrúður rifjaði í þessu samhengi upp mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur fyrrvreandi barna og menntamálaráðherra. Þar hefði ósátt kona haft samband vegna máls sem tengdist Ásthildi Lóu og upplýsingar um símtalið síðan borist úr forsætisráðuneytinu.

Arnþrúður lagði áherslu á að málið hefði ekki verið formlegt stjórnsýslumál. Þrátt fyrir það hefðu gögnin lekið beint úr ráðuneytinu til RÚV og verið birt þar sem frétt. Ásthildur Lóa hafi verið sökuð um refsivert athæfi í beinni útsendingu án þess að málið hefði verið kannað. Síðan hafi komið í ljós að fréttin var röng og ekki um neinn refsiverðan verknað hefði verið um að ræða. Ásthildur Lóa hafi misst ráðherraembættið í kjölfar fréttarinnar og þess uppþots sem varð innan stjórnarráðsins, fyrir alvarlegan misskilning og fljótfærni.

Hún dró því upp samanburð við fréttaflutninginn um símtal Trump og Bjarna og spurði hvort nú væri aftur um sambærilegan leka að ræða. Hún vakti einnig athygli á því að sami fréttamaður, Helgi Seljan hefði komið fram með trúnaðarupplýsingar úr ráðuneytinu í báðum tilvikum.

Greiður aðgangur að leynilegum upplýsingum úr stjórnkerfinu

Pétur sagði ákveðna aðila virðast hafa greiðan aðgang að RÚV og fá leynilegar upplýsingar úr stjórnkerfinu. Þær birtust þar fyrst áður en aðrir aðilar fengju tækifæri til að koma þeim á framfæri eða kanna sannleiksgildi þeirra.

Embættismenn undirriti drengskaparheit

Arnar sagði málið snúa að ábyrgð embættismannakerfisins. Hann vísaði til þess að stjórnmálamenn undirriti drengskaparheit að stjórnarskránni og taldi fulla ástæðu til að embættismenn í ráðuneytum og stjórnsýslustofnunum undirrituðu sambærilegt heit.

Tilgangurinn væri að árétta að embættismenn væru ráðnir af íslensku þjóðinni og ættu fyrst og fremst að starfa að hagsmunum hennar.

Arnar minnti á að slík heit eiga að minna embættismenn á að þeir störfuðu ekki að eigin hagsmunum og „síst af öllu hagsmunum erlends ríkjasambands“.

Hollustan eigi að liggja hjá íslensku þjóðinni

Arnar setti lekamálin í stærra samhengi og gagnrýndi það sem hann taldi of sterk tengsl stjórnmálamanna, embættismannakerfisins og Ríkisútvarpsins við Evrópusambandið. Hann sagði þessa aðila þurfa að muna að þeir væru ráðnir af íslensku þjóðinni til að verja þá þjóðfélagsskipan sem byggð hefði verið upp hér á landi.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila