Fréttir vikunnar: Vaxandi samfélagsátök í Evrópu og Evrópusamstarfsins

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, lögmann og fyrrverandi alþingismann, og Guðbjörn Jónsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara, í Fréttum vikunnar á Útvarpi Sögu um vaxandi samfélagsspennu í Evrópu og framtíð Evrópusamstarfsins. Guðbjörn óttast umfangsmiklar óeirðir í evrópskum stórborgum en Brynjar telur aukin völd stofnana Evrópusambandsins kalla á gagngera endurskoðun samstarfsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Óeirðir gætu magnast í Evrópu

Guðbjörn lýsti áhyggjum af ástandinu í Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi og fleiri Evrópuríkjum. Hann taldi óánægju vegna innflytjendamála, efnahagslegrar óvissu og versnandi framtíðarhorfa ungs fólks geta leitt til alvarlegra samfélagsátaka.

Hann vísaði til umfjöllunar Davids Betz, prófessors við King’s College í London, um vaxandi óstöðugleika. Guðbjörn útilokaði ekki miklar óeirðir á næstu mánuðum og árum, þótt hann spáði ekki beinlínis borgarastyrjöld.

Arnþrúður spurði hvort þróunin gæti leitt til þess að herlög yrðu sett. Brynjar tók undir áhyggjurnar og sagði undirliggjandi samfélagsspennu hafa byggst upp árum saman.

Framtíðarhorfur ungs fólks og lýðræðið undir þrýstingi

Guðbjörn benti á erfiðleika ungs fólks við að eignast húsnæði, stofna fjölskyldu og tryggja fjárhagslegt öryggi. Hann nefndi einnig öldrun íbúa og minnkandi fæðingartíðni sem vandamál sem stjórnvöld gætu ekki leyst á skömmum tíma.

Hann taldi pólitíska réttsýni hafa komið í veg fyrir opna umræðu um viðkvæm samfélagsmál og stuðlað að aukinni skautun. Brynjar spurði hvort lýðræðið sjálft væri komið í hættu og Guðbjörn tók undir að þróunin væri áhyggjuefni.

Bókun 35 hefur takmarkaða hagnýta þýðingu

Arnþrúður tók upp deiluna um bókun 35 við EES-samninginn og málareksturinn fyrir EFTA-dómstólnum. Hún spurði hvort Ísland gætti hagsmuna sinna nægilega vel og ætti að verja afstöðu sína af meiri festu.

Guðbjörn taldi EES-samninginn áfram mikilvægan fyrir Ísland og vildi að ágreiningurinn fengi úrlausn fyrir dómstólum. Hann sagðist hins vegar ekki vilja að íslensk stjórnvöld gengju að kröfum evrópskra stofnana án þess að láta reyna á rétt sinn.

Brynjar taldi bókun 35 hafa litla hagnýta þýðingu og líkti deilunni við að deila um keisarans skegg. Hann skildi þó þau grundvallarsjónarmið sem væru í húfi og taldi mögulegt að leysa málið með breytingum á orðalagi laganna. Það sem skipti máli væri hvort Íslendingar vildu ganga í ESB eða ekki, það ætti að vinna að málinu með hliðsjón af því.

Aukið vald Evrópustofnana kallar á endurskoðun

Brynjar gagnrýndi að stofnanir Evrópusambandsins færðu sífellt meiri völd frá þjóðríkjunum. Hann nefndi meðal annars viðskiptakerfi með losunarheimildir og aukið vald evrópskra dómstóla og taldi nauðsynlegt að endurskoða samstarfið áður en Ísland íhugaði frekari Evrópusamruna.

Guðbjörn tók undir gagnrýni á miðstýringu og skrifræði en lagði áherslu á mikilvægi efnahagssamstarfsins. Hann lýsti sér sem Evrópusinna þótt hann væri ósáttur við framkvæmd margra þátta samstarfsins og taldi að ríki ættu að standa fast á eigin hagsmunum.

Báðir töldu þörf á breytingum á Evrópusamstarfinu, þótt afstaða þeirra til mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu væri ólík.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila