Frjálst flæði vinnuafls hefur ýtt undir félagslegt undirboð

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar stéttarfélags, í síðdegisútvarpinu um frjálst flæði vinnuafls og félagslegt undirboð á íslenskum vinnumarkaði. Sólveig Anna sagði mikið innstreymi vinnuafls geta þrýst niður launum og tengdi þróunina við erfið starfskjör, ótryggt húsnæði og takmörkuð réttindi aðflutts verkafólks. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Þrýstingur á laun og starfskjör

Aðspurð hvort frjálst flæði vinnuafls hefði aukið félagslegt undirboð sagði Sólveig að miklar áskoranir hefðu fylgt þróuninni. Þegar vinnuafl gengi kaupum og sölum eins og hver önnur vara gæti aukið framboð þess þrýst launum niður.

Hún nefndi ræstingageirann sem dæmi en um 80% þeirra sem störfuðu við ræstingar væru konur með innflytjendabakgrunn. Þær væru sérstaklega viðkvæmur og jaðarsettur hópur sem ætti oft erfitt með að sækja rétt sinn.

Leigan tekur allt að 70% tekna

Sólveig sagði húsnæðismarkaðinn skýrasta dæmið um afleiðingar aukinnar eftirspurnar án virkra takmarkana á leiguverði. Fólk hefði þurft að verja allt að 70% ráðstöfunartekna sinna í húsaleigu og sætta sig við óíbúðarhæft eða ólöglegt húsnæði.

Hún tengdi þetta við alvarlega eldsvoða á undanförnum árum þar sem aðflutt verkafólk hefði ítrekað orðið fyrir hörmungum.

Samstaða eina leiðin

Sólveig sagði um helming félagsmanna Eflingar vera af erlendum uppruna. Félagið hefði lagt áherslu á sameiginlega kjarabaráttu óháð tungumáli og upprunalandi.

Hún gagnrýndi að stórir hópar fólks ynnu hér og greiddu skatta án þess að hafa ríkisborgararétt. Fólkið gæti því hvorki tekið þátt í Alþingiskosningum né þjóðaratkvæðagreiðslum.

Aðspurð hvort ESB-aðild myndi auðvelda baráttuna gegn félagslegu undirboði sagðist Sólveig ekki sjá hvernig það ætti að gerast. Verkfærin væru þegar til staðar hér á landi en til þess að nýta þau þyrfti öflug stéttarfélög, samstöðu launafólks og stjórnmálaöfl sem ynnu að hagsmunum þess.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila