
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Má Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, og Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, í þættinum Skipulagsmál. um stöðuna á húsnæðismarkaði og áhrif hárra vaxta. Már telur óbreytta vaxtastefnu halda byggingamarkaðnum í frosti og varar við að afleiðingin geti orðið veruleg lækkun íbúðaverðs. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Setur spurningarmerki við vaxtastefnuna
Már sagði verðbólguvæntingar hafa aukist víða erlendis og benti meðal annars á hækkandi ávöxtunarkröfu bandarískra ríkisskuldabréfa. Þróun erlendis skili sér með einum eða öðrum hætti til Íslands og því setji hann spurningarmerki við hversu langt Seðlabankinn geti gengið einn í að halda vöxtum háum til að draga úr verðbólguvæntingum.
Hann rifjaði upp að stýrivextir hefðu farið niður í 0,75% á tímum COVID og taldi vaxtalækkunina hafa haft mikil áhrif á húsnæðismarkaðinn. Fyrstu kaupendur hefðu streymt inn á markaðinn, íbúðaverð hækkað hratt og örvæntingarkaup orðið til þegar kaupendur óttuðust að missa af frekari hækkunum.
Verðtryggð lán finna líka fyrir vaxtahækkunum
Már hafnaði þeirri umræðu að vaxtahækkanir hefðu nánast engin áhrif á greiðslubyrði verðtryggðra lána.
Hann tók dæmi af 50 milljóna króna láni til 20 ára þegar vextir hækka um 0,25 prósentustig. Samkvæmt útreikningi hans hækkar árleg greiðslubyrði óverðtryggðs láns um 120.000 krónur en verðtryggðs láns um 80.000 krónur. Munurinn, 40.000 krónur, bætist hins vegar við höfuðstól verðtryggða lánsins.
Því telur Már áhrif vaxtahækkana á verðtryggða lántakendur mun meiri en oft sé gefið til kynna.
Íbúðaverð gæti lækkað verulega
Már spurði jafnframt hversu mikinn fórnarkostnað væri réttlætanlegt að bera til að ná 2,5% verðbólgumarkmiði þegar verðbólga væri einnig þrálát í öðrum ríkjum.
Haldi vaxtastefnan áfram óbreytt telur hann augljóst að frost verði áfram á byggingamarkaði. Þá geti tómar íbúðir setið lengur óseldar eða íbúðaverð farið að lækka, jafnvel verulega.
Verð á íbúðum gæti jafvel lækkað verulega
Slík þróun gæti reynst erfið fyrir húsnæðiseigendur. Fólk með verðtryggð lán gæti séð markaðsverð íbúðarinnar lækka á sama tíma og höfuðstóll lánsins hækkar. Eigendur með óverðtryggð lán glíma á sama tíma við mjög háa vexti.
Há greiðslubyrði hefur þegar áhrif á eftirspurn. Már sagði flesta unga kaupendur sem hann þekkir úr hópi nemenda sinna halda að sér höndum enda ráði þeir illa við greiðslubyrðina við núverandi vaxtastig.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
