
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Frosta Sigurjónsson, rekstrarhagfræðing og fyrrverandi alþingismann, í síðdegisútvarpinu um bókun 35, EES-samninginn og þá forgangsreglu sem fyrirhugað er að innleiða. Frosti kallaði bókun 35 bakdyraleið til að ýta Íslandi inn í Evrópusambandið og sagði málið ganga gegn þeirri leið sem samið var um við gerð EES-samningsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Stjórnarskráin leyfir ekki forgangsregluna
Frosti sagði íslensku stjórnarskrána ekki hafa heimilað þá forgangsreglu sem nú er lögð til þegar EES-samningurinn var gerður. Þess vegna hefði verið farin önnur leið þar sem íslenskir dómstólar túlkuðu íslensk lög með hliðsjón af EES-rétti.
Það fyrirkomulag hefði gengið í áratugi. Þegar einstök ágreiningsmál kæmu upp væru þau leyst fyrir dómstólum og Alþingi gæti síðan breytt lögum ef þörf væri á.
Pétur benti á að markmiðið af hálfu EFTA væri að sömu reglur giltu á innri markaðnum. Frosti sagði frumvarpið þó ekki leysa þann vanda heldur skapa lögfræðilegan usla hér á landi.
Norðmenn breyttu stjórnarskránni
Pétur tók upp að Norðmenn hefðu fallist á sambærilegt fyrirkomulag og spurði hvernig þeir hefðu komið því í gegn.
Frosti svaraði að Norðmenn hefðu breytt stjórnarskrá sinni til að heimila framsal valds úr landi. Ísland hefði ekki gert slíka breytingu.
Hann sagði jafnframt enga kröfu koma frá Evrópusambandinu eða aðildarríkjum þess um að Ísland innleiddi bókun 35 með þeirri forgangsreglu sem lögð væri til. Málið ætti uppruna sinn hjá Eftirlitsstofnun EFTA og Ísland gæti látið reyna á ágreininginn fyrir dómstólum.
Bakdyraleið inn í Evrópusambandið
Pétur spurði hvort þeir sem þrýstu á um breytinguna væru enn að vinna að því að færa Ísland nær Evrópusambandinu. Frosti svaraði að bókun 35 væri bakdyraleið til að ýta Íslandi inn í sambandið.
Hann tengdi þetta beint við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og sagði þjóðina hafa hafnað því að ganga inn í Evrópusambandið og viljað halda áfram að setja eigin lög. Að halda áfram með bókun 35 eftir þá niðurstöðu væri ósvífið.
Vill láta reyna á málið fyrir dómstólum
Frosti sagði ekki ástæðu til að samþykkja breytinguna vegna kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA. Ísland gæti staðið fast á þeirri stjórnskipan sem samið var um og látið dómstóla skera úr ágreiningnum.
Hann taldi jafnframt mjög erfitt fyrir utanríkisráðherra að koma málinu í gegnum Alþingi þar sem andstaða hefði aukist og lögfræðingar hefðu gagnrýnt hvernig frumvarpið samræmdist stjórnarskránni. Pétur rifjaði upp að bæði Miðflokkur og Framsókn hefðu verið á móti málinu og að klofningur hefði einnig verið innan Sjálfstæðisflokksins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
