Fullt út úr dyrum í Valhöll

Margt er um manninn í Valhöll þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson mun tilkynna um ákvörðun sína hvort hann gefi kost á sér í formannsembætti flokksins og verði þar með mótframbjóðandi Bjarna Benediktssonar. Bjarni lét hafa eftir sér í fjölmiðlum í morgun að ef hann tapaði í formannskjöri fyrir Guðlaugi Þór þá þýddi það að stjórnmálaferli hans væri lokið.

Búist er við að Guðlaugir tilkynni ákvörðun sína innan nokkurra mínútna.

Uppfært: kl.13:00. Guðlaugur Þór gengur inn í salinn undir dynjandi lófataki og fagnaðarlátum.

Guðlaugur ávarpar fundargesti
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila