Fulltrúar utanríkisráðuneytisins að störfum í Egyptalandi vegna dvalarleyfishafa á Gaza

Þriggja manna sendinefnd frá utanríkisráðuneytinu sem hélt til til Kaíró í Egyptalandi í þeim tilgangi að greiða fyrir för fólks sem fengið hefur dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar frá Gaza vinna nú að því að greiða úr málum fólksins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. 

Fram kemur í tilkynningunni að fulltrúar utanríkisráðuneytisins hafi undanfarna daga átt í góðum samskiptum við stjórnvöld í Egyptalandi og Ísrael. Þá hafa sendiskrifstofur Norðurlandanna einnig veitt góða ráðgjöf. Ekki er vitað hversu lengi sendinefndin verður í Egyptalandi að svo stöddu.

Íslenskum stjórnvöldum ber að vinna samkvæmt þeim formlegu opinberu ferlum sem ísraelsk og egypsk stjórnvöld hafa sett um framkvæmd þessara mála. Að undangengnu samþykki ísraelskra og egypskra stjórnvalda fyrir ferðum dvalarleyfishafanna munu íslensk stjórnvöld veita þeim aðstoð við landamæri Gaza og Egyptalands. 

Utanríkisráðuneytið segist vonast eftir skjótum framgangi mála, en slíkt er háð afgreiðsluhraða og afstöðu stjórnvalda á staðnum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila