
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Snorra Másson, þingmann og varaformann Miðflokksins í síðdegisútvarpinu i dag, um fullveldi Íslands og möguleg áhrif aðildar að Evrópusambandinu. Í viðtalinu hélt Snorri því fram að saga Íslands sýndi að sjálfstæð ákvarðanataka hefði ítrekað reynst þjóðinni farsæl og sérstaða landsins gerði samanburð við mörg aðildarríki Evrópusambandsins torveldan. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fullveldið er forsenda framfara
Snorri sagði að fullveldi fælist fyrst og fremst í því að þjóð gæti sjálf tekið ákvarðanir um eigin málefni og brugðist við breyttum aðstæðum á eigin forsendum. Hann rakti hvernig sjálfstæðisbarátta Íslendinga hefði snúist um að færa stjórnskipulegt vald frá erlendum yfirvöldum til landsmanna sjálfra og taldi að sú þróun hefði lagt grunn að framförum þjóðarinnar á síðustu öld.
Hann nefndi sérstaklega útfærslu fiskveiðilögsögunnar sem dæmi um hvernig Ísland hefði nýtt breyttar aðstæður á alþjóðavettvangi til að tryggja eigin hagsmuni. Þrátt fyrir andstöðu stærri ríkja hefði Ísland náð árangri vegna þess að landið fór sjálft með ákvörðunarvaldið og gat mótað stefnu sína án afskipta annarra ríkja.
Ísland í annarri stöðu en önnur Evrópuríki
Í umræðunni lagði Snorri áherslu á að Ísland væri frábrugðið flestum ríkjum Evrópu. Hann benti á að landið byggi yfir miklum náttúruauðlindum, sjálfstæðri fiskveiðistjórn, endurnýjanlegri orku og hagkerfi sem væri að mörgu leyti sérstakt í evrópsku samhengi.
Að hans mati væri því ekki sjálfgefið að það sem hentaði stærri ríkjum Evrópu hentaði einnig Íslandi. Hann sagði að umræðan um Evrópusambandið yrði að taka mið af sérstöðu landsins fremur en að byggja á samanburði við ríki sem byggju við allt aðrar aðstæður.
Söguleg reynsla og framtíðarákvarðanir
Snorri vísaði einnig til sögulegra dæma um framsal valds og nefndi meðal annars Gamla sáttmála. Hann sagði að slíkar ákvarðanir hefðu oft verið teknar við sérstakar aðstæður en afleiðingar þeirra orðið víðtækari og langlífari en upphaflega hefði verið gert ráð fyrir.
Umræðan um Evrópusambandsaðild ætti því að mati Snorra, ekki aðeins að snúast um efnahagsleg atriði heldur einnig um getu Íslands til að stýra eigin málum til framtíðar. Reynsla síðustu aldar sýndi að þjóðinni hefði almennt vegnað best þegar hún hefði sjálf farið með ákvörðunarvald um eigin málefni og byggt þróun sína á eigin forsendum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
