Fundur um krabbamein eftir COVID-bólusetningar vakti mikla athygli

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Guðmund Karl Snæbjörnsson, sérfræðing í heimilislækningum í síðdegisútvarpinu um fund sem haldinn var um möguleg tengsl krabbameina og COVID-19 bólusetninga. Í viðtalinu sagði Guðmundur Karl fundinn hafa vakið mikla athygli þar sem bæði læknar og aðstandendur einstaklinga sem höfðu veikst alvarlega eftir bólusetningar hefðu komið fram og lýst reynslu sinni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Guðmundur Karl sagði lækni sem starfað hefði í Svíþjóð hafa flutt erindi á fundinum þar sem farið var yfir meinafræðilegar rannsóknir og breytingar sem hefðu komið fram í vefjasýnum eftir bólusetningar. Hann sagði einnig rætt um rannsóknir þýska meinafræðingsins Arne Burkhardt sem hafði rannsakað vefjasýni og haldið því fram að ákveðnar breytingar í líffærum gætu tengst COVID-19 bóluefnum.

Foreldrar sögðu frá veikindum barna sinna eftir Covid 19 sprautur

Í viðtalinu kom fram að meðal fundargesta hefðu verið foreldrar sem sögðu börn sín hafa greinst með alvarleg veikindi eftir bólusetningar. Guðmundur Karl nefndi meðal annars 17 ára pilt sem hefði greinst með lungnakrabbamein og unga konu sem hefði látist eftir að hafa greinst með krabbamein á unga aldri.

Segir fólk óttast að tjá sig opinberlega

Guðmundur Karl sagði marga sem teldu sig hafa orðið fyrir skaða eftir bólusetningar óttast að tjá sig opinberlega. Hann sagði fólk upplifa bæði skömm og sektarkennd og sumir ættingjar hefðu átt erfitt með að ræða veikindi eða dauðsföll sem þeir teldu tengjast bólusetningum. Hann sagði einnig að læknar og aðrir sérfræðingar hefðu í sumum tilfellum óttast afleiðingar fyrir starf sitt ef þeir tjáðu sig opinberlega um gagnrýni á aðgerðir stjórnvalda eða bólusetningar.

Í viðtalinu gagnrýndi Guðmundur Karl það sem hann kallaði lokun á opinni umræðu innan heilbrigðiskerfisins. Hann sagði vísindi ekki byggjast á einum endanlegum sannleika heldur stöðugri leit að nýrri þekkingu og gagnrýninni umræðu.

Samfélagsþrýstingur og kúgun

Guðmundur Karl ræddi um samfélagslegan þrýsting á tímum COVID-19 og sagði fólk hafa verið hrætt við að setja sig upp á móti ríkjandi stefnu stjórnvalda og heilbrigðisyfirvalda. Hann sagði fjárhagslegir hagsmunir, stjórnsýsla og alþjóðlegar stofnanir hafa haft mikil áhrif á umræðuna á tímum faraldursins. Þá gagnrýndi hann einnig fjölmiðla og stjórnvöld fyrir að hafa að hans mati ekki skapað nægilegt rými fyrir gagnrýnar spurningar um áhrif bólusetninga og sóttvarnaaðgerða.

Í lok viðtalsins sagði Guðmundur Karl að hann teldi umræðuna vera að breytast og fleiri væru farnir að kalla eftir sjálfstæðum rannsóknum á afleiðingum COVID-19 og bólusetninga, bæði á Íslandi og erlendis.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila