Fyrsta skólfustungan tekin að nýrri Þjóðarhöll

Ljósmynd Þráinn Kolbeinsson

Fyrsta skóflustungan að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin í gær. Þar með eru framkvæmdir formlega hafnar við nýjan heimavöll íslenskra landsliða í innanhússíþróttum. Höllin verður um 17.700 fermetrar, með 8.600 sæti og rými fyrir allt að 12.000 gesti á viðburðum. Stefnt er að því að hún verði tilbúin í janúar 2030, ári áður en Ísland heldur heimsmeistaramót karla í handknattleik ásamt Danmörku og Noregi.

Framkvæmdin er samstarfsverkefni ríkisins, Reykjavíkurborgar og íþróttahreyfingarinnar. Samningur um hönnun og byggingu Þjóðarhallarinnar hljóðar upp á 16,825 milljarða króna með virðisaukaskatti og er fjármagnaður af ríkinu og Reykjavíkurborg.

Ungt íþróttafólk tók fyrstu skóflustunguna

Athöfnin fór fram í Laugardalshöll að viðstöddum fulltrúum stjórnvalda, íþróttahreyfingarinnar og framkvæmdaaðila.

Ávörp fluttu meðal annarra Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Að athöfninni lokinni tók ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og íþróttafélögum í Laugardal fyrstu skóflustunguna.

Þátttakendurnir voru Helga Jenný Vigfúsdóttir frá Handknattleikssambandi Íslands, Hulda María Agnarsdóttir frá Körfuknattleikssambandi Íslands, Fjölnir Logi Halldórsson frá Blaksambandi Íslands, Þorsteinn Orri Ólafsson frá Fimleikasambandi Íslands, Hjalti Björnsson frá Ármanni og Saga Björgvinsdóttir frá Þrótti.

Nýr heimavöllur íslenskra landsliða

Þjóðarhöllin verður fjölnota mannvirki fyrir innanhússíþróttir, menningarviðburði, kennslu og aðra viðburði.

Hún mun rísa sunnan við núverandi Laugardalshöll og tengjast bæði henni og Frjálsíþróttahöllinni.

Núverandi Laugardalshöll var vígð árið 1965 og uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Íslensk landslið hafa því þurft að leika þar á undanþágum.

Thomas Möller, stjórnarformaður Þjóðarhallar ehf., segir að nýja höllin marki upphaf nýs kafla í íslenskri íþróttasögu.

Hún verði heimavöllur landsliðanna og vettvangur stórra íþróttaviðburða, auk þess að bæta aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal.

Bætt aðstaða fyrir skólabörn og íþróttafélög

Með byggingu Þjóðarhallarinnar er einnig stefnt að því að bæta verulega aðstöðu grunnskólabarna og íþróttafélaganna Þróttar og Ármanns.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir framkvæmdina fjárfestingu í framtíð barna og ungmenna í Reykjavík.

Hún bendir á að nýja mannvirkið muni skapa aukna möguleika til íþróttaiðkunar, hreyfingar og félagsstarfs og styrkja stöðu Laugardalsins sem miðstöðvar íþrótta og útivistar.

Inga Sæland, ráðherra íþróttamála, segir framkvæmdina afrakstur samstarfs ríkisins, borgarinnar og íþróttahreyfingarinnar.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra tekur í sama streng og bendir á að lengi hafi verið beðið eftir því að framkvæmdir hæfust.

Verksamningur upp á tæpa 17 milljarða

Verksamningur um hönnun og byggingu Þjóðarhallarinnar var undirritaður 30. september síðastliðinn við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila þeirra.

Að verkefninu koma einnig ASK arkitektar, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun.

Samningsupphæðin er 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti og tekur breytingum samkvæmt vísitölu byggingarkostnaðar frá janúar 2026.

Þjóðarhöll ehf. var stofnað í janúar 2024 og er í 55% eigu ríkissjóðs og 45% eigu Reykjavíkurborgar.

Við hönnun hallarinnar verður miðað við að hún uppfylli kröfur um algilda hönnun og aðgengi fyrir alla. Þá er stefnt að BREEAM-umhverfisvottun með einkunninni „Very Good“.

Áætluð verklok eru í janúar 2030 og verður höllin þá tilbúin fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik árið 2031, gangi framkvæmdir samkvæmt áætlun.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila