
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Má Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði, við Háskóla Íslands, og Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, í þættinum Skipulagsmál um hverskonar húsnæði fólk vill raunverulega kaupa. Már sagði afar fáar eignir í boði fyrir fyrstu kaupendur sem þeir ráða við og að margar þeirra mæti ekki þörfum fólks sem er að hefja búskap og stofna fjölskyldu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fjölskyldufólk vill meira en þak yfir höfuðið
Már sagði eðlilegt að fólk sem væri að hefja búskap og jafnvel eignast börn horfði ekki aðeins á fermetrafjölda og verð. Samgöngur, græn svæði, næði og aðstaða fyrir börn skiptu einnig miklu máli.
Hann nefndi nýtt hverfi í Hafnarfirði þar sem fjölbýlishús hefðu verið reist en leiksvæði væru lítil og aðstaða fyrir börn takmörkuð. Slíkt umhverfi væri ekki endilega það sem ungar fjölskyldur sæktust eftir.
Már vill sjá fjölbreyttari byggð þar sem fleiri kostir séu í boði en hefðbundnar stórar blokkir. Hann nefndi meðal annars eldri 3ja hæða fjölbýlishús við Mímisveg og Freyjugötu þar sem garðar, sól og opið umhverfi væru hluti af búsetugæðunum.
Vill hugsa meira um hvernig fólki líður
Már sagði einnig áhugavert að skoða húsnæðislausnir þar sem minni íbúðir væru tengdar sameiginlegum rýmum. Hann hafði séð slíkt fyrirkomulag í Uppsölum þar sem sameiginleg stofa, eldhús, leiksvæði og græn svæði sköpuðu samfélag milli íbúanna.
Þar gætu börn leikið sér á meðan eldra fólk hefði aðgang að sameiginlegum rýmum og félagsskap. Hann taldi ástæðu til að hugsa meira út fyrir hefðbundna nálgun þar sem blokk væri einfaldlega reist og síðan önnur við hlið hennar.
Hann notaði orðið vistvænt um slíkt húsnæði en átti þar ekki fyrst og fremst við byggingarefni heldur hönnun sem gerði það að verkum að fólki liði vel í eigin nærumhverfi.
Óskir fólks breytast eftir æviskeiðum
Jónas sagði stóra könnun HMS um búsetu- og skipulagsóskir sýna mjög skýrt að fólk vilji ekki allt það sama.
Yngsta fólkið væri opnara fyrir því að búa í fjölbýli og sama gilti um eldra fólk sem vildi minnka við sig, losna við viðhald og vera nær þjónustu.
Fólk á fjölskyldualdri sæktist hins vegar frekar eftir sérbýli, meira næði og stærra rými fyrir börn.
Jónas sagði því ekki raunhæft að byggja eina tegund húsnæðis og gera ráð fyrir að hún hentaði öllum. Skipulag og uppbygging þyrftu að taka mið af ólíkum þörfum fólks eftir aldri, fjölskyldustöðu og búsetu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
