Gera breytingar á bílastæðastefnu og borgarumhverfi

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Einar Þorsteinsson borgarfulltrúa Framsóknar, formann borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóra í síðdegisútvarpinu um bílastæðamál, skipulag borgarumhverfis og öryggi í tengslum við rafskútur. Fram kom að nýr meirihluti hyggst gera breytingar á bílastæðastefnu Reykjavíkurborgar, fjölga möguleikum til bílastæðagerðar við nýjar íbúðir og endurskoða aðgerðir sem hafa dregið úr aðgengi bíla að ýmsum hverfum borgarinnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Bílastæðareglur verði rýmkaðar

Einar sagði að nýr meirihluti teldi að núverandi stefna um fækkun bílastæða við nýjar íbúðabyggingar hefði víða skapað vandamál fyrir íbúa. Að hans mati hefði borgin í auknum mæli reynt að stýra því hversu mörg bílastæði fylgdu nýjum íbúðum, með þeim afleiðingum að eftirspurn eftir stæðum væri víða meiri en framboðið.

Meirihlutinn hyggst því afnema eða rýmka reglur sem takmarka fjölda bílastæða við nýbyggingar og auðvelda verktökum að byggja bílastæðakjallara. Einnig verði skoðað að lækka gjöld sem tengjast slíkum framkvæmdum og hafa hækkað verulega á undanförnum árum.

Að sögn Einars eiga íbúar að geta gengið að bílastæðum við heimili sín sem eðlilegum hluta af uppbyggingu nýrra hverfa.

Fækkun bílastæða verði endurskoðuð

Í viðtalinu gagnrýndi Einar einnig aðgerðir sem gripið hefur verið til á síðustu árum þar sem bílastæðum hefur verið fækkað eða þau tekin undir önnur verkefni án þess að fullnægjandi rök hafi legið að baki.

Hann sagði að nýr meirihluti hygðist fara yfir slíkar ákvarðanir og tryggja að stæði sem þörf væri fyrir nýtist áfram íbúum og gestum borgarinnar. Sérstaklega nefndi hann áhyggjur eldri borgara og hreyfihamlaðra sem eigi í auknum erfiðleikum með að sækja þjónustu eða heimsækja vini og vandamenn þegar erfitt reynist að finna bílastæði í nágrenni við áfangastað.

Jafnframt verði farið yfir fyrirkomulag íbúakorta og annarra reglna sem tengjast bílastæðamálum.

Rafskútur valda áhyggjum

Rafskútur og önnur smáfarartæki voru einnig til umræðu. Einar sagði mikilvægt að bæta öryggi gangandi vegfarenda og tryggja að betur væri gengið frá skútum þegar notkun þeirra lyki.

Víða erlendis væru skútur bundnar við sérstök skilasvæði þar sem ekki væri hægt að ljúka leigu nema ökutækin væru lögð á tilteknum stöðum. Slíkar lausnir gætu komið til greina í Reykjavík til að koma í veg fyrir að skútur lægju um gangstéttar, stíga og opin svæði.

Borgarumhverfið taki mið af þörfum íbúa

Einar sagði að markmið nýs meirihluta væri ekki að snúa baki við nýjum samgöngumátum heldur að skapa jafnvægi milli þarfa ólíkra hópa. Borgarumhverfið þyrfti að þjóna bæði gangandi vegfarendum, hjólandi fólki, notendum almenningssamgangna og þeim sem reiða sig á einkabílinn í daglegu lífi.

Að hans mati hafi of mikil áhersla verið lögð á að breyta ferðavenjum fólks með stjórnsýslulegum aðgerðum. Nýr meirihluti vilji þess í stað byggja skipulag borgarinnar á raunverulegum þörfum íbúa og tryggja að aðgengi, þjónusta og samgöngur þróist í takt við þær þarfir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila