Gistileyfi 40% fleiri en íbúafjöldi í Skaftafellssýslum

Sveitarfélögin í Skaftafellssýslum boðuðu til málþings um öryggisinnviði miðvikudaginn 17. apríl. Málþingið var afar vel sótt enda eru innviðir sem tengjast öryggi íbúa og ferðamanna í Skaftafellssýslum mjög þandir og álag á viðbragðsaðila gríðarlegt.

Fram kom að í sveitarfélögunum þremur er íbúafjöldi 4200. Til samanburðar eru útgefin gistileyfi á svæðinu yfir 5600. Þetta þýðir að ferðamenn sem gista á hótelum og gistiheimilum á hverri einustu nóttu, nánast allt árið um kring, eru 40% fleiri en íbúar sveitarfélaganna. Þá er ótalinn sá mikli fjöldi sem gistir í heimagistingu, í ferðavögnum eða tjöldum, svo ekki sé talað um þá sem aka um svæðið en gista ekki.

Í dag eru viðmið varðandi heilbrigðisþjónustu og öryggisviðbragð í sveitarfélögum reiknuð miðað við höfðatölu íbúa. Öllum er ljóst að sú aðferð er úrelt og engan veginn til þess fallinn að mæta því álagi sem er í Skaftafellssýslum vegna fjölda ferðamanna.

Á málþingið mættu allir helstu hagsmunaaðilar og tóku samtal um stöðuna og mögulegar lausnir. Ekki er þó til einföld lausn á þessari áskorun því verkefni krefst sameiginlegrar sýnar og átaks allra hagaðila, ekki síst stjórnvalda.

Líflegar umræður voru á málþinginu og samhljómur allra hagaðila um brýna þörf á aðgerðum strax. Næstu skref verða að stofna samráðshóp hagsmunaaðila í Skaftafellssýslum og mun sá hópur beita sér fyrir tafarlausum aðgerðum af hálfu stjórnvalda þegar kemur að öryggi íbúa og ferðamanna í sveitarfélögunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila