
Soffía Karlsdóttir ræddi við Oddnýju Jónsdóttur, formann Píeta-samtakanna, í Tali og tónum um starf samtakanna og þá aðstoð sem þar er í boði. Fólk 18 ára og eldra getur fengið gjaldfrjálsa meðferð vegna sjálfsvígshugsana og sjálfsskaða hjá fagaðilum Píeta. Nýja símanúmer samtakanna, 1799, er jafnframt opið allan sólarhringinn. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Allt að 10 viðtöl og fleiri ef þörf krefur
Oddný sagði að það kæmi mörgum á óvart að Píeta veitti faglega meðferð og starfaði undir landlækni. Þeir sem leita til samtakanna hitta fagaðila og geta fengið allt að 10 viðtöl og fleiri ef þörf er á.
Hjá Píeta starfar þverfaglegt teymi, meðal annars félagsráðgjafar, sálfræðingar, fjölskyldufræðingar og læknir. Einnig hefur iðjuþjálfi starfað með samtökunum.
Aðstoðin er ekki aðeins ætluð þeim sem glíma sjálfir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaða. Aðstandendur geta einnig fengið viðtöl hjá Píeta enda getur fylgt því mikið álag að eiga náinn ástvin sem vill ekki lifa. Samtökin sinna jafnframt þeim sem syrgja eftir sjálfsvíg.
Hægt að hringja í 1799 allan sólarhringinn
Píeta hefur lagt sérstaka áherslu á að kynna nýja símanúmerið 1799 í gulum september. Samtökin hafa farið í kirkjur og heimsótt vinnustaði til að vekja athygli á þjónustunni og minna fólk á hvert það getur leitað.
Soffía benti á að fólk sem ætti erfitt með að taka fyrsta skrefið þyrfti ekki að segja til nafns þegar það hringdi. Síminn er opinn allan sólarhringinn og Oddný hvatti fólk til að hafa samband ef það þyrfti á hjálp að halda.
Enginn þarf að bera byrðarnar einn
Nýja símanúmerið var einnig haft að leiðarljósi í hlaupi sem Píeta stóð fyrir í Himnastigunum í Kópavogi. Markmiðið var að fara samtals 1799 ferðir upp stígana.
Þátttakendur báru stein með sér á leiðinni til að minna á að fólk þurfi ekki að bera þungar byrðar eitt. Oddný sagði mjög góða þátttöku hafa verið í viðburðinum og að margir hefðu komið til að taka þátt.
Boðskapur Píeta er að það sé alltaf von og hjálp að fá. Samtökin vilja að fólk viti af úrræðunum og leiti eftir aðstoð áður en erfiðleikarnir verða yfirþyrmandi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
