„Gjörið svo vel“ – Ísland á að mæta samningsbrotamáli af fullri ró

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson hagfræðing og stærðfræðing í Síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um bókun 35 við EES-samninginn og mögulegt samningsbrotamál gegn Íslandi. Guðmundur sagði Íslendinga ekki eiga að óttast slíkt mál heldur mæta því af fullri ró og segja við Eftirlitsstofnun EFTA: „Gjörið svo vel.“ Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samningsbrotamál yfirvofandi

Arnþrúður vakti athygli á fréttum um að samningsbrotamál væri yfirvofandi gegn Íslandi vegna bókunar 35.

Guðmundur sagði Eftirlitsstofnun EFTA geta farið með málið í samningsbrotameðferð en Ísland ætti einfaldlega að mæta því af ró. Hann taldi enga ástæðu til að bregðast við slíkri málsmeðferð með ótta. „Gjörið svo vel,“ sagði Guðmundur um mögulegt samningsbrotamál og bætti við að Íslendingar ættu að mæta því með ró.

Forgangsreglan þegar fyrir hendi

Í þættinum benti Arnþrúður á að forgangsregla EES-réttar væri þegar fyrir hendi í íslenskum rétti sem kæmi fram í lögum um evrópska efnahagssvæðið nr. 2 frá 1993. Vísað var meðal annars til dóms þar sem fram hefði komið að í stærri málum sem varða Evrópurétt ættu íslenskir dómstólar að hafa til hliðsjónar reglur ESB réttar við uppkvaðningu dóma. Þetta hefði gengið vel í dómaframkvæmd á Íslandi og dómarar hefðu fylgt þessu reglum í hvívetna.

Arnþrúður vísaði til laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og sagði 4. grein laganna þegar fela í sér framkvæmd forgangsreglunnar. Við gerð EES- samningsins hefði það verið krafa frá ESB samningsaðilum að Ísland hefðu þessa reglu inn í lögum sem og var gert.

Guðmundur sagði regluna hafa verið hluta af íslensku réttarkerfi allan þennan tíma og íslenskir dómarar hefðu beitt henni vel. Af þeim sökum taldi hann ekki tilefni til að óttast að málið færi fyrir Eftirlitsstofnun EFTA.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila