
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu í þættinum Fréttir vikunnar um stöðu Samhjálpar eftir að upp kom ágreiningur um fyrirhugaða starfsemi samtakanna í nýju húsnæði. Í umræðunni var farið yfir þá tillögu sem hafi komið fram hjá Bylgjunni og í símatíma Útvarps Sögu að Samhjálp fengi Braggann í Nauthólsvík til afnota. Að mati þeirra gæti það bæði leyst húsnæðisvanda samtakanna og tryggt betri nýtingu á umdeildri eign Reykjavíkurborgar sem Dagur B. Eggertsson bæri ábyrgð á frá borgarstjóratíð sinni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Bragginn raunhæf lausn
Í þættinum kom fram að hugmyndin um að Samhjálp flytti starfsemi sína í Braggann í Nauthólsvík hefði komið fram í umræðunni í Símatímanum fyrr um morguninn og í gær í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og fengið jákvæð viðbrögð. Bent var á að staðsetningin gæti hentað vel skjólstæðingum Samhjálpar og þar væri þegar fyrir hendi húsnæði sem mætti nýta í stað þess að standa áfram að mestu ónotað.
Fram kom að Bragginn hefði áður verið nýttur til veitingareksturs og annarrar starfsemi og því væri þar aðstaða sem gæti nýst samtökunum. Að mati Arnþrúðar og Péturs væri eðlilegt að kanna þann kost alvarlega, enda ætti Reykjavíkurborg húsnæðið.
Deilan um húsnæði Samhjálpar
Í umræðunni var jafnframt farið yfir hvernig núverandi staða hefði komið upp. Fram kom að Samhjálp hefði ráðist í kostnaðarsamar framkvæmdir í húsnæði sem samtökin höfðu tekið á leigu í þeirri trú að nauðsynleg leyfi og samþykktir lægju fyrir. Síðar hefði komið í ljós að ýmis formsatriði, meðal annars varðandi eignaskiptasamninga og heimildir til starfseminnar, væru ekki frágengin. Nefndarmenn fyrri borgarstjórnar hefðu ekki gengið úr skugga um þessi atriði áður en þau veittu leyfið.
Erfitt væri að skilja hvernig slíkt mál hefði getað þróast með þessum hætti. Þau bentu á ef deiliskipulag og önnur stjórnsýsluferli hefðu verið afgreidd með eðlilegum hætti hefði málið getað komið fyrr til skoðunar og komið í veg fyrir þann kostnað og óhagræði sem síðar féll til.
Þá var einnig vikið að þeim fjárhæðum sem nefndar hafa verið vegna breytinga á húsnæðinu. Fram hefur komið að kostnaðurinn gæti numið tugum milljóna króna, allt að 55 mílljónir, þó mismunandi tölur hafi verið nefndar í opinberri umræðu.
Betri nýting á umdeildri eign borgarinnar
Arnþrúður og Pétur töldu að með því að færa Samhjálp í Braggann mætti leysa 2 mál í senn. Annars vegar fengju samtökin varanlegra húsnæði fyrir starfsemi sína og hins vegar yrði fundin ný og markviss not fyrir mannvirki sem hefur árum saman verið eitt umdeildasta framkvæmdamál Reykjavíkurborgar og kostnaðurinn hefði farið fram úr öllu hófi.
Jafnframt að tilefni væri til að fara ítarlega yfir hvernig ákvörðunin um núverandi húsnæði Samhjálpar hefði verið tekin og hvort mistök hefðu orðið í stjórnsýslunni. Mikilvægt væri að skýra ábyrgð og tryggja að sambærileg staða kæmi ekki upp á ný.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
