Greinir á um fjárhag Reykjavíkurborgar og rekstur félagslegs húsnæðis

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ara Edwald, oddvita Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar og Pétur Marteinsson, oddvita Samfylkingarinnar í síðdegisútvarpinu um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar, skuldir borgarinnar og framtíð félagslegs húsnæðis. Þar tókust þeir á um hvort rekstur borgarinnar væri sjálfbær og hvernig bregðast ætti við auknum útgjöldum á komandi árum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Samfylkingin segir stöðu borgarinnar sterka

Pétur Marteinsson hafnaði því að Reykjavík væri í alvarlegum fjárhagsvanda og sagði slíka umræðu hafa verið áberandi árum saman án þess að þær svartsýnisspár hefðu ræst. Hann sagði borgina hafa staðið af sér bæði heimsfaraldur og efnahagsáföll síðustu ára, á sama tíma og fjárfest hefði verið í innviðum og þjónustu. Pétur sagði nettóskuldir Reykjavíkurborgar vera meðal þeirra lægstu á höfuðborgarsvæðinu og borgin hefði áfram svigrúm til fjárfestinga. Hann sagði rekstrarniðurstöðu síðasta árs að stórum hluta tengjast lífeyrisskuldbindingum vegna nýrra kjarasamninga kennara.

Þá sagði hann mikilvægt að borgin héldi áfram að fjárfesta í félagslegu húsnæði og þjónustu við þá sem ættu erfiðast með að fóta sig á húsnæðismarkaði.

Miðflokkurinn vill hagræðingu og lægri kostnað

Ari Edwald sagði aftur á móti að rekstur borgarinnar væri ekki sjálfbær til lengri tíma. Hann gagnrýndi hallarekstur síðasta árs og sagði Reykjavík hafa byggt fjárhag sinn að hluta á lóðasölu og arðgreiðslum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann sagði einnig að borgin hefði tekið inn tugi milljarða króna með sölu lóða á undanförnum árum án þess að fjárhagsstaðan hefði styrkst nægilega. Að hans mati þyrfti að ráðast í ítarlega endurskoðun á rekstri borgarinnar og draga úr kostnaði þar sem það væri mögulegt.

Þá sagði Ari mikilvægt að félagslegt húsnæði stækkaði ekki um of og taldi markmiðið eiga að vera að auðvelda fólki að eignast eigið húsnæði fremur en að auka sífellt vægi opinberra úrræða.

Jöfnuður og húsnæðismál áfram í deiglunni

Pétur sagði vaxandi ójöfnuð á húsnæðismarkaði eitt stærsta samfélagsmálið í Reykjavík. Hann sagði sífellt færra ungt fólk komast inn á fasteignamarkaðinn án fjárhagslegrar aðstoðar og taldi mikilvægt að sveitarfélagið héldi áfram að styðja við hagkvæmt húsnæði og félagsleg úrræði. Í umræðunni kom fram að ágreiningurinn snýst ekki aðeins um fjárhag borgarinnar heldur einnig um hlutverk Reykjavíkurborgar í velferðar- og húsnæðismálum næstu ára.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila