Guð, kjarni deilunnar innan SÁÁ

Deilurnar sem hafa skekið SÁÁ undanfarnar vikur snúast í grunninn um Guð og trúarlegan þátt í meðferðarstarfi samtakanna. Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur greindi frá þessu í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag. Hingað til hefur ekki komið skýrt fram opinberlega hvað liggur að baki þeim miklu átökum sem orðið hafa innan samtakanna. Guðmundur segir að það eigi að láta Guð í friði, hver og einn geti valið hverju hann vilji trúa.

Guðmundur segir lækna og vísindamenn sem starfa innan SÁÁ vilja að trúarlegi þátturinn í meðferðinni verði valkvæður. Félagasamtökin Rótin eru sömu skoðunar.

Þannig eigi fólk sjálft að geta ákveðið hvort trú og trúarleg nálgun verði hluti af meðferð þess.

Innan SÁÁ er hins vegar andstaða við að breyta meðferðinni með þessum hætti og þar liggur, samkvæmt Guðmundi, grundvallarágreiningurinn sem hefur leitt til þeirra miklu deilna sem nú standa yfir.

Vilja að fólk geti valið trúarlega þáttinn

Guðmundur segir lækna og vísindamenn vilja að meðferð við fíknisjúkdómum byggist á faglegum og vísindalegum grunni og að trúarleg nálgun sé í boði fyrir þá sem vilja nýta sér hana.

Ágreiningurinn snýst því ekki um að banna fólki að nýta trú eða andleg úrræði í bataferlinu heldur hvort slíkt eigi að vera fastur hluti meðferðar eða val hvers og eins.
Þetta hefur ekki komið skýrt fram í þeirri opinberu umræðu sem hefur átt sér stað um deilurnar.

Þar hefur fyrst og fremst verið fjallað um afskipti framkvæmdastjórnar SÁÁ af faglegu starfi, uppsagnir stjórnenda og kröfur um skýrari aðgreiningu milli stjórnar félagasamtakanna og þeirra sem bera faglega ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni.

Fjöldi stjórnenda hætt

Deilurnar hafa þegar haft miklar afleiðingar fyrir starfsemi SÁÁ.

Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri lét af störfum í ágúst. Í kjölfarið hættu Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, og Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga.

Valgerður sakaði stjórn SÁÁ um afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna og Þóra Björk tók undir þá gagnrýni. Formaður SÁÁ hefur hafnað því að stjórnin hafi haft slík afskipti.

Á sjöunda tug starfsmanna lýsti síðan yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ og kallaði eftir skýrum svörum um hvernig tryggja ætti faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins.

Læknir hætti eftir aðeins tvær vikur

Jón Áki Jensson tók tímabundið við sem framkvæmdastjóri lækninga eftir brotthvarf Valgerðar en sagði starfinu lausu eftir aðeins um tvær vikur.

Hann sagði læknamönnun verulega ábótavant og að læknar virtust almennt hvorki vilja né treysta sér til að stíga inn í deilurnar. Hann taldi að önnur heilbrigðisstofnun þyrfti að koma að málum til að tryggja þjónustuna.

Ástandið hefur þegar haft áhrif á starfsemi Vogs. Um tíma var hætt að taka við nýjum sjúklingum vegna læknaskorts og aðeins einn sérfræðilæknir var þá að störfum.

Landspítali hefur nú verið beðinn um að aðstoða SÁÁ við læknamönnun. Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands hefur bent á að haldi röskunin áfram muni hluti vandans óhjákvæmilega færast yfir á Landspítalann.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila