Guðbjörn: EES-samningurinn þarf að vera opinn fyrir endurskoðun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara, í síðdegisútvarpinu, um bókun 35, EES-samninginn og stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Guðbjörn, sem sjálfur studdi áframhaldandi umsóknarferli Íslands að ESB, telur eðlilegt að EES-samningurinn sé tekinn reglulega til umræðu og metið hvort hann þjóni enn hagsmunum Íslands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Skilur rök andstæðinga bókunar 35

Guðbjörn sagðist vel skilja að fólk væri ekki endilega sammála því að samþykkja bókun 35, sérstaklega eftir niðurstöðuna í ESB-málinu og þar sem Ísland væri ekki á leið inn í Evrópusambandið.

Hann benti einnig á að Norðmenn hefðu viljað breytingar á EES-samningnum og fundist ýmislegt við framkvæmd hans íþyngjandi en norska stjórnarskráin heimili slíkt valdaframsal. Á sama tíma væri Evrópusambandið sjálft að glíma við breytingar og meðal annars reynt að draga úr reglugerðafargani.

Þótt Guðbjörn hafi verið fylgjandi ESB-aðild telur hann því ekki sjálfgefið að samþykkja eigi allt sem fylgir EES-samstarfinu án umræðu.

Ísland situr ekki við borðið

Guðbjörn sagði eitt helsta vandamálið við EES-fyrirkomulagið vera að Ísland sitji ekki við borðið þegar löggjöf Evrópusambandsins verður til.

Hann sagði möguleika Íslands til að hafa áhrif á löggjöfina mjög takmarkaða og tók fram að þetta hefði einmitt verið eitt þeirra raka sem ESB-sinnar hefðu sjálfir notað fyrir aðild Íslands að sambandinu.

Arnþrúður benti á að Ísland gæti komið að málum á fyrri stigum og gert athugasemdir við gerðir sem hentuðu landinu illa. Guðbjörn tók undir að ýmislegt væri hægt að gera innan núverandi kerfis en það breytti ekki grundvallarstöðunni um takmörkuð áhrif á sjálfa lagasetninguna.

Lýðræðisleg umræða um EES-samninginn

Guðbjörn sagði ekkert óeðlilegt við að bókun 35 yrði rædd samhliða stærri umræðu um EES-samninginn.

Hann telur eðlilegt að á nokkurra áratuga fresti sé farið yfir hvort samningurinn henti Íslandi og hvort hann þjóni íslenskum hagsmunum. Guðbjörn telur samninginn vissulega gera það að einhverju leyti en það eigi ekki að útiloka endurskoðun eða gagnrýna umræðu.

Hann tók þó fram að tímasetningin væri ekki sérstaklega heppileg þar sem mikill kraftur hefði nýlega farið í umræðuna um Evrópusambandið og fólk væri orðið þreytt á málaflokknum.

Telur gagnrýni á Árna Pál ómaklega

Guðbjörn gagnrýndi jafnframt hvernig umræðan um ESA og bókun 35 hefði að hluta beinst persónulega að Árna Páli Árnasyni.

Hann sagði Árna Pál vera að sinna starfi sínu hjá ESA en ekki koma þar fram sem fulltrúa Íslands. Guðbjörn vísaði til eigin reynslu úr stjórnsýslunni þar sem hann hefði sjálfur þurft að bregðast við erindum frá ESA.

Hann sagðist því ekki skilja hvers vegna slík mál yrðu persónugerð. Stofnunin hefði ákveðið hlutverk og starfsmenn hennar væru að sinna því hlutverki.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila