
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing,óperusöngvara og stuðningsmann Viðreisnar, í síðdegisútvarpinu, um stöðu Viðreisnar og ráðherra flokksins. Guðbjörn hrósaði Þorbjörgu Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og sagði hana eiga að fá meiri ábyrgð og stærra hlutverk bæði innan Viðreisnar og ríkisstjórnarinnar. Þorgerður “má ekki leika meira af sér” Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vill sjá Þorbjörgu fá meira vægi
Guðbjörn sagði Þorbjörgu vera þann ráðherra sem horfðist hvað skýrast í augu við raunveruleikann og væri að hans mati á mjög góðum stað. Hann vildi því sjá hana taka að sér meiri ábyrgð innan ríkisstjórnarinnar og jafnframt fá meira vægi innan Viðreisnar.
Arnþrúður spurði hvort hann væri með þessu að leggja til að Þorbjörg tæki við af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Guðbjörn sagði Viðreisn sjálfa verða að ákveða hvernig ábyrgð og embætti skiptust innan flokksins. Þorgerður gæti áfram setið en Guðbjörn bætti við að hún mætti ekki leika mikið meira af sér.
Ræðan hjá Sameinuðu þjóðunum reyndi á þolrifin
Guðbjörn sagði að þó hann gagnrýni ákveðna þætti varðandi Þorgerði Katrínu hefði hún að hans mati staðið sig mjög vel í ESB-málinu. Hann er sjálfur stuðningsmaður Viðreisnar og lýsti yfir mikilli ánægju með framgöngu hennar þar. Ræða hennar hjá Sameinuðu þjóðunum olli honum hins vegar miklum vonbrigðum og sagði hann hana hafa reynt verulega á þolrifin.
Varnarsamningurinn skiptir miklu
Guðbjörn lagði mikla áherslu á stöðu Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Ísland væri mjög háð varnarsamningnum og þyrfti jafnframt að gæta mikilvægra viðskiptahagsmuna í samskiptum ríkjanna.
Hann sagði því sérstaklega mikilvægt að hægt væri að treysta utanríkisráðherra Íslands í samskiptum við Bandaríkin og að ráðherrann færi varlega með orð sín á alþjóðavettvangi.
Þótt Guðbjörn vilji að Þorbjörg fái meiri ábyrgð gekk hann ekki svo langt að kalla eftir brotthvarfi Þorgerðar Katrínar. Gagnrýni hans beindist fyrst og fremst að ræðu hennar hjá Sameinuðu þjóðunum en lofið um Þorbjörgu að því hvernig hún hefur tekist á við þau verkefni sem hún hefur fengið innan ríkisstjórnarinnar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
