
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Guðbjörn Guðbjörnsson, stjórnsýslufræðing og óperusöngvara, í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðu Viðreisnar og forystu flokksins. Guðbjörn sagði tíma Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sem formanns vera liðinn og að flokkurinn þyrfti nýja forystu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ný forysta nauðsynleg
Guðbjörn sagðist vilja sjá nýjan formann Viðreisnar. Að hans mati væri hins vegar komið að breytingum á formennsku flokksins. Þorgerður gæti áfram sinnt utanríkismálum og þeim verkefnum sem þar lægju fyrir en Viðreisn þyrfti eitthvað nýtt í forystuna.
Guðbjörn greindi frá því að hann sjálfur hafi kosið Viðreisn og sagðist ætlast til þess að flokkurinn stæði við þær áherslur sem hann hefði kosið hann til að fylgja eftir.
Framkvæmd vegur þungt
Í umræðunni lagði hann mikla áherslu á að stjórnmálamenn yrðu að fylgja orðum sínum eftir með framkvæmdum. Hann sagði ekki nægja að vera góður í tali, fyndinn eða sterkur í framkomu. Mikilvægara væri að fólk í forystu gerði það sem það segðist ætla að gera.
Guðbjörn nefndi í því samhengi Davíð Oddsson og Helmut Kohl sem dæmi um stjórnmálamenn sem hefðu að hans mati verið sterkir í framkvæmd. Hann nefndi einnig Ingu Sæland og sagði hana hafa náð ýmsu af því fram sem hún lofaði sínum kjósendum.
Vill að Þorbjörg Sigríður verði næsti formaður
Guðbjörn sagði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, vera einn sterkasta liðsmann Viðreisnar í dag og lýsti henni sem harðri í horn að taka. Því væri það hans skoðun að hana vildi hann fá sem næsta formann Flokksins.
Hann sagðist ánægðari með störf hennar í útlendingamálum en það sem á undan hefði komið, þótt hann vildi sjálfur ganga lengra í breytingum á málaflokknum. Það sem hann lagði mesta áherslu á var að hún virtist framkvæma það sem hún segðist ætla að gera.
Hann tók jafnframt fram að hann væri ekki áhrifamaður í flokknum heldur liti á sig sem almennan kjósanda sem hefði fylgst lengi með stjórnmálum.
Afstaða hans til formennskunnar var þó afdráttarlaus: Viðreisn þyrfti nýja forystu og tími Þorgerðar Katrínar sem formanns væri liðinn.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
