Guðjón Valur styrkir Fjölskylduhjálp Íslands

Guðjón Valur Sigurðsson handboltakappi.

Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, færði Fjölskylduhjálp Íslands góða gjöf á dögunum; öll ónotuð íþróttaföt og -skó sem hann átti í fórum sínum og meira til. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjölskylduhjálpinni. Í tilkynningunni segir að Guðjón Valur hafi lengi verið með samninga við stóra íþróttavöruframleiðendur, fyrst Adidas og nú Mizuno. Yfir langan feril hafi því gríðarlegt magn íþróttafatnaðar safnast saman, bæði frá stuðningsaðilum hans sem og þeim félagsliðum sem hann hefur spilað fyrir.

Eins og kunnugt er flytur Guðjón Valur í sumar frá Þýskalandi til Parísar og því fannst honum gráupplagt að gefa þau föt sem hann hefur ekki not fyrir til góðs málefnis. Fyrir valinu varð Fjölskylduhjálp Íslands því honum var umhugað að fatnaðurinn færi til ungs fólks sem ekki gæti sjálft keypt dýran fatnað.

Ég get með besta vilja aldrei notað öll þessi föt og aðrir hafa mun meiri not fyrir þetta en ég,“ sagði Guðjón Valur.
Satt best að segja hafði ég ekki gert mér grein fyrir magninu fyrr en ég fór að taka til fyrir flutningana til Parísar annars hefði ég sennilega verið löngu búinn að gefa þetta til góðs málefnis,“ sagði Guðjón Valur.

Ásgerður Jóna Flosadóttir sem veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd Fjölskylduhjálparinnar er Guðjóni afar þakklát en um er að ræða yfir 200 kíló af fötum og skóm, flestu ónotuðu.

Okkur finnst þetta rausnarleg gjöf frá landsliðsfyrirliðanum,“ segir Ásgerður Jóna.

Við vitum að það er ekki ódýrt að stunda íþróttir, þrátt fyrir opinberan stuðning. Þessi gjöf Guðjóns Vals mun létta undir með mörgum fjölskyldum, það er alveg klárt mál. Við erum honum gríðarlega þakklát.“

Fjölskylduhjálp Íslands hefur frá árinu 2003 úthlutað fatnaði og síðar mat til þeirra sem erfitt eiga í samfélaginu. Fatagjöf Guðjóns Vals verður úthlutað til skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar Þriðjudaginn 4.júní næstkomandi milli klukkan 14:00 og 17:00.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila