Guðlaugur: Svör fjármálaráðherra um Landsvirkjun standast ekki skoðun

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, í síðdegisútvarpinu, á Útvarpi Sögu, um starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun og vinnubrögð stjórnar fyrirtækisins. Guðlaugur Þór telur svör fjármálaráðherra á Alþingi um málið ekki standast skoðun og kallar eftir upplýsingum um hvað ráðherrann vissi um stjórnarfundi sem haldnir voru, án vitundar eða þátttöku forstjórans. Hann telur jafnframt að breytingar á skipan stjórnar Landsvirkjunar og skortur á upplýsingagjöf veki alvarlegar spurningar um ábyrgð ráðherra og eftirlit Alþingis. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Svör ráðherra standist ekki skoðun

Guðlaugur Þór telur fjármálaráðherra ekki hafa gert nægilega grein fyrir því sem leiddi til starfsloka Harðar Arnarsonar eftir 17 ár sem forstjóri Landsvirkjunar. Ráðherrann hefði svarað fyrirspurnum á Alþingi með þeim hætti að ekkert frekara væri um málið að segja, en síðar hefðu komið fram upplýsingar sem kölluðu á mun ítarlegri skýringar.

Hörður hefði sjálfur lýst vinnubrögðum stjórnarinnar sem hann gat ekki sætt sig við, meðal annars að stjórnarmenn hefðu fundað án hans. Guðlaugur Þór taldi sérstakt að ráðherra hefði ekki gert grein fyrir þessum aðstæðum þegar málið var rætt á Alþingi.

Hvað vissi fjármálaráðherra þegar hann svaraði þinginu?

Meginspurningin væri hvað fjármálaráðherra vissi þegar hann svaraði þinginu. Hefði hann þekkt til fundanna og ágreiningsins þyrfti að skýra hvers vegna þær upplýsingar komu ekki fram. Hefði hann hins vegar ekki vitað af þeim vaknaði spurning um upplýsingaflæði milli ráðherra og stjórnar fyrirtækisins.

Guðlaugur Þór sagði svör ráðherrans í besta falli ónákvæm og taldi hann ekki hafa upplýst Alþingi um allt sem hann vissi um stöðuna innan Landsvirkjunar.

Stjórnarfundir án forstjóra samræmast ekki góðum stjórnarháttum

Sérstakar athugasemdir voru gerðar við að stjórn Landsvirkjunar hefði haldið fundi án forstjórans á sama tíma og lýst var yfir fullu trausti á honum.

Guðlaugur Þór benti á að forstjóri hefði lögbundnu hlutverki að gegna í starfsemi fyrirtækisins. Þótt stjórnarmönnum væri heimilt að hittast væri annað mál þegar samskipti þeirra við forstjóra þróuðust þannig að hann gæti ekki lengur sinnt störfum sínum með eðlilegum hætti.

Hann dró í efa að slík vinnubrögð samræmdust lögum um Landsvirkjun og taldi þau að minnsta kosti ganga gegn góðum stjórnarháttum.

Forstjórinn fékk ekki fund með fjámálaráðherra

Fram hefði komið hjá Herði að hann hefði óskað eftir fundi með fjármálaráðherra án þess að fá hann. Guðlaugur Þór taldi óeðlilegt að forstjóri eins mikilvægasta fyrirtækis þjóðarinnar fengi ekki slíkan fund þegar alvarleg staða væri komin upp.

Hann vakti einnig athygli á því að fjármálastjóri Landsvirkjunar væri farinn frá fyrirtækinu. Á skömmum tíma hefði því verið skipt um stjórn og bæði forstjóri og fjármálastjóri látið af störfum.

Landsvirkjun er ekki einkamál stjórnmálaflokks

Arnþrúður vakti athygli á breyttu fyrirkomulagi við skipan stjórnar Landsvirkjunar. Áður hefðu stjórnmálaflokkar á Alþingi haft fulltrúa í stjórninni en nú væri hún valin samkvæmt nýju fyrirkomulagi á vegum fjármálaráðherra.

Guðlaugur Þór sagði breytinguna hafa dregið úr möguleikum kjörinna fulltrúa til að fylgjast með starfsemi fyrirtækisins. Ráðherrann skipaði stjórnina að undangengnu valferli og bæri því sérstaka ábyrgð á því hvernig til hefði tekist.

Viðreisn hegðar sér eins og Landsvirkjun sé einkamál stjórnmálaflokks

Hann taldi ríkisstjórnina, og sérstaklega Viðreisn sem færi með fjármálaráðuneytið, haga málum eins og um væri að ræða einkamál stjórnmálaflokks.
Landsvirkjun væri hins vegar fyrirtæki þjóðarinnar og eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins. Rekstur þess hefði áhrif á raforkuöryggi, atvinnulíf og fjárhag ríkisins.

Arnþrúður spurði einnig hvort eðlilegt væri að þingkjörnir fulltrúar hefðu ekki lengur sömu aðkomu að stjórn fyrirtækis sem væri í eigu almennings.
Guðlaugur Þór taldi skort á gagnsæi ekki einskorðast við Landsvirkjun heldur endurspegla breytt vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.

Upplýsingaleynd torveldar eftirlit Alþingis

Hann lýsti því hvernig þingnefndir ættu erfiðara með að fá upplýsingar frá ráðuneytum og svör við fyrirspurnum þingmanna drægjust ítrekað. Sem dæmi nefndi hann að minnihluti fjárlaganefndar hefði þurft að bíða í um ár eftir sundurliðun á útgjöldum til varnartengdra verkefna frá utanríkisráðuneytinu.

Slík vinnubrögð torvelduðu Alþingi að sinna eftirlitshlutverki sínu. Kjörnir fulltrúar gætu ekki gætt hagsmuna almennings ef þeir fengju ekki upplýsingar um ákvarðanir framkvæmdavaldsins.

Landsvirkjun undanþegin upplýsingalögum

Guðlaugur Þór benti á að Landsvirkjun væri undanþegin upplýsingalögum. Það gerði bæði þingmönnum og fjölmiðlum erfiðara að fá upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins.

Arnþrúður taldi þetta sérstaklega varhugavert þegar ráðherra hefði jafnframt afgerandi áhrif á skipan stjórnarinnar og takmarkaðar upplýsingar lægju fyrir um val á stjórnendum fyrirtækisins. Hún benti á að nú hefði verið auglýst að ekki yrði birtur listi umsækjenda og það væri slæmt því það yrði að vera einhver samanburður á umrækjendum,þegar endanlegur forstjóri verður valinn. Landsmenn ættu rétt á að fá að sjá þann lista.

Kallar eftir skýringum á því sem gerðist

Arnþrúður nefndi ýmsar hugmyndir sem komið hefðu fram um mögulegar ástæður breytinganna hjá Landsvirkjun. Þar á meðal væru vangaveltur um auknar arðgreiðslur til ríkissjóðs og ágreining um sölu raforku til bandarískra eða evrópskra fyrirtækja.

Guðlaugur Þór tók hins vegar fram að hann vissi ekki hvort slíkar hugmyndir hefðu haft áhrif á starfslok Harðar. Hann vildi ekki fullyrða um ástæður sem ekki hefðu verið upplýstar. Aðalatriðið væri að stjórn fyrirtækisins hefði fundað án forstjórans og ráðherra hefði ekki veitt fullnægjandi skýringar á því sem gerðist.

Hann taldi nauðsynlegt að bæði stjórn Landsvirkjunar og fjármálaráðherra gerðu grein fyrir atburðarásinni, enda væri traust til stjórnenda fyrirtækisins forsenda þess að það gæti áfram gegnt mikilvægu hlutverki sínu í íslensku samfélagi.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila