
Guðmundur Ari Sigurjónsson alþingismaður hefur verið kjörinn nýr varaformaður Samfylkingarinnar. Hann var sjálfkjörinn á flokksstjórnarfundi flokksins í Suðurnesjabæ í dag, en framboðsfrestur rann út klukkan 14. Guðmundur Ari tekur við embættinu af Guðmundi Árna Stefánssyni, sem hafði áður óskað eftir að láta af störfum sem varaformaður.
Guðmundur Árni kvaddi flokksstjórnina með ræðu á fundinum áður en nýr varaformaður tók til máls og kynnti áherslur sínar fyrir næstu ár.
Guðmundur Ari sagði eitt mikilvægasta verkefni varaformannsins vera að efla innra starf Samfylkingarinnar og undirbúa flokkinn fyrir næstu kosningar.
Vill efla flokksstarfið um allt land
Í ræðu sinni lagði Guðmundur Ari áherslu á að byggja upp öfluga fjöldahreyfingu og styrkja tengsl flokksfélaga um land allt.
Hann sagði mikilvægt að undirbúningur næstu kosninga hæfist strax og að varaformaðurinn legði krafta sína í að tengja flokksmenn saman.
„Við jafnaðarmenn vitum að baráttan fyrir almannahagsmunum er öðruvísi en baráttan fyrir sérhagsmunum. Sterkir sérhagsmunir verja gríðarlegum fjármunum í að verja sína stöðu,“ sagði Guðmundur Ari.
Hann sagði samstöðu almennings nauðsynlega til að ná fram þeim breytingum sem flokkurinn berst fyrir.
„En baráttan fyrir almannahagsmunum þarf að byggjast á öflugri fjöldahreyfingu og samstöðu fólksins í landinu. Því þurfum við púls í félögunum okkar um allt land,“ sagði hann.
Hefur verið þingflokksformaður Samfylkingarinnar
Guðmundur Ari er 38 ára og var kjörinn á Alþingi fyrir Suðvesturkjördæmi í þingkosningunum 2024.
Hann hefur gegnt embætti þingflokksformanns Samfylkingarinnar á yfirstandandi kjörtímabili.
Áður sat hann í bæjarstjórn Seltjarnarness í tíu ár, frá 2014 til 2024, og var formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar á árunum 2022 til 2025.
Hann sat jafnframt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2018 til 2024.
Starfaði áður við æskulýðsmál og hjá Rannís
Guðmundur Ari er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt og starfaði um árabil við æskulýðsmál á Seltjarnarnesi, meðal annars sem forstöðumaður.
Hann hefur einnig sinnt stundakennslu í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og starfaði sem sérfræðingur hjá Rannís áður en hann tók sæti á Alþingi.
Guðmundur Ari er giftur Nönnu Kaaber Árnadóttur og eiga þau þrjú börn.
Með kjöri hans lýkur formlega varaformannstíð Guðmundar Árna Stefánssonar, sem gegnt hefur embættinu frá árinu 2022.
