
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing í síðdegisútvarpinu um þær breytingar sem orðið hafa á stjórnmálum og efnahagskerfum. Guðmundur sagði gömlu skilin milli vinstri og hægri vera dauð og hugtökin lýstu ekki lengur þeim veruleika sem stjórnmál og efnahagslíf byggðu á. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Gamla tvískiptingin á ekki lengur við
Hugtökin vinstri og hægri hefðu haft skýrari merkingu fyrir 30–40 árum þegar átökin snerust í meira mæli um hvort ríkið eða einstaklingurinn ætti að ráða ferðinni í efnahagslífinu.
Guðmundur rakti þessar hugmyndir aftur til kenninga Adams Smith, David Ricardo og Karls Marx og sagði þær hafa þróast í tvær einstrengingslegar áttir. Annars vegar hefði ríkið átt að stjórna öllu og hins vegar hefði einstaklingurinn átt að ráða öllu.
Nútímahagkerfi væru hins vegar byggð á blöndu beggja leiða.
Einkarekstur og opinber þjónusta saman
Arnþrúður tók Ísland sem dæmi um blandað hagkerfi þar sem einkafyrirtæki, fjármagnsmarkaður og hagnaðardrifinn atvinnurekstur störfuðu samhliða opinberri þjónustu og ríkisrekstri.
Guðmundur tók undir það og nefndi skólakerfið og sjúkrahúsin sem dæmi um starfsemi sem Íslendingum dytti ekki í hug að leggja niður þótt einkarekstur væri jafnframt mikilvægur hluti hagkerfisins.
Hann nefndi einnig starfsemi félagasamtaka á borð við SÍBS, DAS, SÁÁ, Grund og Náttúrulækningafélagið. Þar kæmu einstaklingar og félagasamtök að rekstri en ríkið fjármagnaði starfsemina að hluta eða verulegu leyti.
Skýrari mörk milli ríkis og einkarekstrar
Þetta fyrirkomulag kallar að hans mati á skýrari reglur um hvað ríkið eigi að greiða fyrir og hvað einkaaðilar eða félagasamtök eigi sjálf að bera ábyrgð á.
Guðmundur sagði slíkan rekstur stundum starfa í of miklu lausu lofti og að skýrari reglur væru nauðsynlegar til að draga úr hættu á spillingu.
Gamla pólitíska flokkunin í vinstri og hægri dygði því ekki lengur til að svara spurningum um hvernig slíkur rekstur ætti að vera uppbyggður. Þörf væri á að móta reglur sem hæfðu blönduðu hagkerfi þar sem ríki, einstaklingar og félagasamtök gegna öll hlutverki.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
