
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing, í síðdegisútvarpinu í dag,um leigumarkaðinn, hugmyndir um leigubremsu og vaxtastefnu Seðlabankans. Guðmundur sagði að skipta ætti um seðlabankastjóra ef hann talaði um tillögur ráðherra um leigubremsu sem heimskulegar og gagnrýndi jafnframt vaxtahækkanir bankans þegar þrengdi að í efnahagslífinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Leigjendur standa veikari að vígi
Guðmundur sagði algengt að settar væru reglur til að vernda leigjendur gegn óhóflegum hækkunum enda væru þeir oft í veikari stöðu gagnvart eigendum húsnæðis.
Leigubremsur væru útfærðar með mismunandi hætti en hugmyndin um að setja einhverjar skorður við hækkunum á leigu væri langt frá því að vera óþekkt.
Hann gagnrýndi því viðbrögð Seðlabankans við hugmyndum um leigubremsu og sérstaklega að seðlabankastjóri hefði talað um slíka leið sem heimskulega.
Vaxtahækkanir þegar þrengir að
Guðmundur beindi jafnframt gagnrýninni að vaxtastefnunni. Þegar farið væri að kreppa að, atvinnuleysi færi vaxandi, framleiðsla ætti undir högg að sækja og hagvöxtur væri lítill hefði Seðlabankinn brugðist við með hærri stýrivöxtum.
Hann sagði þá stefnu hafa verið ranga og nefndi Wolfgang Mixa og Ragnar Önundarson í því samhengi.
Þegar seðlabankastjóri, sem bæri ábyrgð á slíkri vaxtastefnu, kallaði síðan leigubremsu heimskulega væri komið yfir ákveðin mörk. Guðmundur sagði þá rétt að skipta um seðlabankastjóra.
Svartur leigumarkaður rök gegn útfærslu en ekki lögum
Arnþrúður benti á að komið hefði fram gagnrýni um að leigubremsa gæti ýtt undir svart hagkerfi þar sem leigusalar og leigjendur gætu orðið sér út um leiðir framhjá reglunum.
Guðmundur viðurkenndi að slík vandamál gætu komið upp og vísaði til reynslu frá Svíþjóð. Það væri þó ekki rök fyrir því að sleppa lagasetningu heldur þyrfti að haga lögum og eftirliti þannig að hægt væri að bregðast við misnotkun.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
