Guðni: Njála er frelsisbók kvenna

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðna Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi sögu, um stöðu kvenna í Brennu-Njáls sögu og áhrif þeirra á framvindu hennar. Guðni kallar Njálu frelsisbók kvenna og segir Hallgerði langbrók hafa markað spor fyrir konur þegar farið var að leita samþykkis hennar fyrir hjónabandi í stað þess að faðir hennar ráðstafaði henni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Konurnar ráða ferðinni í Njálu

Arnþrúður vakti athygli á því að þótt mikið væri fjallað um Gunnar, Njál og Skarphéðin væri ástæða til að spyrja hvort það væru í raun konurnar sem stýrðu atburðarás sögunnar.

Guðni tók undir mikilvægi kvennanna og sagðist í sínum lestri hafa greint 7 konur sem réðu ferðinni í Njálu. Þar nefndi hann Unni Marðardóttur, Gunnhildi konungamóður, Hallgerði langbrók, Melkorku, Bergþóru, Rannveigu húsfreyju á Hlíðarenda og Hildigunni Starkaðardóttur.

Þær hefðu með ólíkum hætti afgerandi áhrif á örlög fólksins í sögunni og framvindu hennar.

Hallgerður markaði spor fyrir konur

Guðni sagði Hallgerði langbrók formóður sína í beinan legg og að hún hefði markað spor fyrir konur.

Hún hefði fyrst verið gefin manni án þess að vera spurð. Þegar síðar stóð til að hún giftist Glúmi hefði Hrútur hins vegar sagt að nú yrði að spyrja Hallgerði og hún yrði ekki gefin öðruvísi. Einnig hefði verið leitað samþykkis hennar þegar Gunnar á Hlíðarenda kom til sögunnar.

Guðni telur fleiri stúlkur hafa notið góðs af þessari breytingu og að feður hafi ekki lengur getað ráðstafað þeim með sama hætti.

Þess vegna kallar hann Njálu frelsisbók kvenna sem er að koma út 20. september, fallega myndskreytta og skrifuð eftir bók Jóns Böðvarssonar. Hún sé bók um vald kvenna, fegurð þeirra, gáfur og hæfileika.

Hallgerður í nýju ljósi

Arnþrúður benti á að Hallgerður hefði lengi verið túlkuð sem vonda konan í Njálu og spurði hvort sú mynd væri að breytast. Hún spurði hvort líta mætti á Hallgerði sem sterka konu sem hefði orðið fórnarlamb karllægs samfélags.

Guðni sagði Hallgerði barn síns tíma og rakti hvernig hún hefði snemma fengið á sig harðan dóm. Þegar hún var um 10 ára hefði Hrútur sagt hana mjög fagra en jafnframt spurt hvaðan „þjófsaugu“ væru komin í ætt þeirra. Hallgerður hefði gengið grátandi á brott.

Síðar hefði hún verið gefin eldri manni án þess að vera spurð og Guðni telur hana hafa verið um 14 ára. Þjóstólfur hefði jafnframt misnotað stöðu sína gagnvart henni og haft mikil áhrif á líf hennar.

Neitaði að láta aðra stjórna lífi sínu

Fram kom í þættinum að nauðsynlegt væri að horfa til þess samfélags sem konurnar í Njálu bjuggu við. Þær hefðu verið gefnar og þeim ráðstafað og því væri ekki skrýtið að einhver þeirra risi gegn því. Hallgerður hefði ekki viljað sætta sig við það hlutskipti.

Hún varð að mati Guðna kona sem neitaði að láta aðra ráða öllu um líf sitt. Sú túlkun væri ein ástæða þess að hann liti á Njálu sem sögu þar sem konur hefðu mun meira vald og áhrif en oft væri gert ráð fyrir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila