
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðna Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, í síðdegisútvarpinu ´i dag, um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þörfina á að sætta þjóðina eftir kosningarnar. Guðni segir lýðræðið hafa talað og þeir sem urðu undir verði að sætta sig við niðurstöðuna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hafi farið fyrir máli sem hún trúi á en hún hafi lagt það í dóm þjóðarinnar og verði að virða niðurstöðuna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Þorgeir sameinaði þjóðina á Þingvöllum
Umræðan kviknaði þegar Arnþrúður spurði Guðna hvaða persónu úr Njálu hann myndi helst vilja færa inn í íslenskt samfélag árið 2026.
Guðni nefndi fyrst Njál og visku hans en sagði síðan að Íslendingar gætu einnig þurft á Þorgeiri Ljósvetningagoða að halda. Hann rifjaði upp hvernig Þorgeir sætti andstæð sjónarmið á Þingvöllum árið 1000 þegar ágreiningur var um hvort þjóðin skyldi vera heiðin eða kristin. Kjarni málsins væri að Þorgeir hefði fundið leið til að sætta fylkingarnar og koma í veg fyrir að þjóðin klofnaði.
Lýðræðið hefur talað
Guðni tengdi þá sögu við stöðuna eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Nú þyrfti að sætta þjóðina við að lýðræðið hefði talað.
Nei hefði orðið ofan á og þjóðin lýst því yfir að hún vildi vera fullvalda. Þeir sem urðu undir í kosningunum yrðu að sætta sig við niðurstöðuna og síðan þyrfti að snúa sér að öðrum verkefnum.
Guðni vísaði einnig til Paweł Bartoszek og sagði hann hafa gengið hart fram í umræðunni en nú talað um að hugsanlega væri rétt að draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka og leggja málið niður. Hann sagði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hafa tekið sér umhugsunartíma og velti því fyrir sér hvort hún væri að leita leiða til að sætta þjóðina.
Þorgerður lagði málið í dóm þjóðarinnar – verður að virða niðurstöðuna
Guðni sagði sér ljóst að Þorgerður Katrín væri sár eftir niðurstöðuna. Hún hafi farið fyrir máli sem hún hefði trú á en orðið undir. Hún hefði hins vegar sjálf lagt málið í dóm þjóðarinnar og yrði því að virða niðurstöðuna.
Arnþrúður minnti á að ráðherra ríkisstjórnarinnar hefðu ítrekað sagt að þeir treystu þjóðinni og nú þyrfti að halda áfram á þeim grunni sem niðurstaðan skapaði.
Í því sambandi vitnaði Arnþrúður í gamalt orðtak „Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér“ sem á sér rætur hjá Esóp og varð síðar frægt í bandarískum stjórnmálum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
