
Kristján Örn Elíasson ræddi við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan meistara í skák og fyrrverandi ritstjóra DV, í þættinum Við skákborðið um frammistöðu íslenska kvennalandsliðsins á Ólympíumótinu í skák. Björn sagði Guðrúnu Fanney Briem hafa hæfileikana og keppnishörkuna til að verða besta íslenska skákkonan frá upphafi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Allar græddu stig á mótinu
Íslenska liðið endaði í 82. sæti eftir að hafa verið í 80. sæti á styrkleikalista mótsins. Lokaniðurstaðan sagði þó ekki alla söguna því allar 5 skákkonurnar græddu stig.
Guðrún Fanney græddi um 60 stig. Björn tók þó fram að þá tölu yrði að skoða í því ljósi að hún hefði átt erfitt tímabil fyrir mótið og verið komin mun neðar í stigum en geta hennar gæfi tilefni til. Á Ólympíumótinu hefði hún snúið genginu við og sýnt hvað í henni byggi.
Iðunn Helgadóttir átti einnig mjög góðan kafla og vann sterkar skákkonur, en Hrund Hauksdóttir tapaði ekki skák og fékk 5 vinninga úr 6 skákum sem varamaður. Kristján benti á að andstæðingar Hrundar hefðu verið heldur veikari en árangurinn væri engu að síður mjög góður.
Keppnisharkan stórt vopn
Björn hefur fylgst með Guðrúnu Fanney frá því hún var barn og sagði keppnishörkuna alltaf hafa verið áberandi.
Hann rifjaði upp skák þar sem hann hafði sjálfur teflt við hana þegar hún var mjög ung og mun stigahærri en hún. Eftir tapið hefði hún verið afar ósátt og þau viðbrögð lýstu vel þeim keppniseldi sem alltaf hefði verið í henni.
Það væri einmitt þessi keppnisharka, ásamt hæfileikunum, sem gæti fleytt henni mjög langt.
Getur tekið við leiðtogahlutverki
Kristján sagði Ólympíumótið mikilvæga reynslu fyrir Guðrúnu Fanney og bar stöðu hennar saman við Vigni Vatnar Stefánsson í opna landsliðinu. Að hans mati gæti hún tiltölulega fljótlega orðið leiðtogi kvennalandsliðsins enda væru einnig fleiri sterkar ungar skákkonur að koma upp.
Björn tók undir mikilvægi þess að byggja áfram á þeim efniviði sem væri fyrir hendi.
Mikilvægt að halda þeim við skákina
Björn sagði íslenskt skáklíf hafa átt margar efnilegar skákkonur á síðari árum en vandinn hefði oft verið að þær hættu eða drægju verulega úr taflmennsku í kringum menntaskólaárin þegar annað tæki við.
Þess vegna skipti miklu máli að Guðrún Fanney og Iðunn héldu áfram að tefla. Þær gætu orðið mikilvægar fyrirmyndir fyrir yngri skákkonur sem væru að koma upp.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
