
Guðrún Hafsteinsdóttir hefur verið kjörin nýr formaður Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt upplýsingum fékk Guðrún 50,1% atkvæða.
Guðrún hefur átt langan og fjölbreyttan feril í stjórnun, atvinnulífi og stjórnmálum. Hún starfaði í stjórn Samtaka iðnaðarins frá 2011 til 2020 og var formaður stjórnar þeirra frá 2014 til 2020. Á sama tíma var hún í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins, auk þess að gegna varaformennsku í samtökunum á árunum 2015–2017.
Hún var formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna frá 2021, auk þess að hafa verið formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða á árunum 2018–2021. Guðrún var einnig virk í mennta- og fræðslumálum, m.a. í stjórn Háskólans í Reykjavík og ráðgjafaráði hans.
Á vettvangi sveitarstjórnar- og félagsmála hefur hún m.a. setið í nefndum tengdum skipulagsmálum, sundíþróttum og kirkjumálum. Hún var einnig meðal stofnenda Hugvallar árið 2021.
Guðrún hefur setið á Alþingi frá 2021 fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi. Hún var formaður efnahags- og viðskiptanefndar 2021–2023 og sat í fleiri nefndum á Alþingi. Hún var skipuð dómsmálaráðherra árið 2023 og gegndi embættinu til 2024.
