
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, miðil og heilara, í síðdegisútvarpinu í dag, á Útvarpi Sögu um framtíð íslenskra stjórnmála, efnahagsmál og Landsvirkjun. Guðrún spáir falli ríkisstjórnarinnar, myndun þjóðstjórnar og alvarlegum efnahagsþrengingum jafnvel bankahruni, eftir áramót. Hún sér jafnframt fyrir sér breytingar á forystu Seðlabankans og uppstokkun innan stjórnarflokkanna. Tekið skal fram að spáin er samkvæmisleikur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ríkisstjórnin gæti fallið fyrir jól
Guðrún spáir því að fleiri þingmenn yfirgefi stjórnarflokkana, þar á meðal 2 konur sem færi sig yfir í Sjálfstæðisflokkinn eða Miðflokkinn. Óánægja innan Viðreisnar og Flokks fólksins muni aukast og ríkisstjórnin missa meirihlutann.
Arnþrúður spurði hvort þá yrði boðað til kosninga. Guðrún sá þess í stað fyrir sér þjóðstjórn sem tæki við um jólin, hugsanlega með aðkomu Höllu Tómasdóttur forseta.
Hún spáir einnig stofnun nýs stjórnmálaflokks með aðkomu Ólafs Ragnars Grímssonar og frekari tíðindum af Jóni Gnarr.
Stýrivextir í 9,4% og efnahagshrun eftir áramót
Guðrún sér ekki fyrir sér vaxtalækkanir heldur frekari hækkanir. Þegar Arnþrúður spurði hvort stýrivextir gætu hækkað úr 8% nefndi Guðrún töluna 9,4%.
Fram kom að efnahagshrun væri í kortunum sem tengist bönkunum, byggingariðnaðinum og fasteignamarkaðnum. Íbúðir muni ekki seljast, húsnæðisverð lækka og bankar taka yfir fasteignir sem síðan verði leigðar út.
Guðrún sá einnig jafnframt áframhaldandi verðhækkanir og telur heimilin standa frammi fyrir sífellt erfiðari fjárhagsstöðu.
Uppgjör í Landsvirkjun og breytingar í stjórnmálum
Guðrún spáir því að frekari upplýsingar um starfslok Harðar Arnarsonar komi fram og þær tengist ágreiningi um nýtingu fjármuna Landsvirkjunar. Hún sér fyrir sér nýja stjórn fyrirtækisins, kröfu um afsögn fjármálaráðherra og jafnvel endurkomu Harðar í forstjórastólinn.
Þá kom fram í spá Guðrúnar að bókun 35 verði ekki innleidd, auk þess sem hún greindi frá því sem hún sér varðandi málarekstur EFTA gegn Íslandi í málinu. Í spánni kom fram að Inga Sæland hætti í stjórnmálum og breytingar verði á úthlutun félagslegs húsnæðis og aðstoð við heimilislausa.
Guðrún sér einnig áframhaldandi jarðhræringar við Grindavík en ekki eldgos fyrir jól. Hún spáir hlýindum fremur en hvítum jólum.
Fyrir þá sem vilja fá einkatíma hjá Guðrúnu Kristínu er rétt að benda á að hægt er að bóka tíma á Noona appinu með því að smella hér.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
