
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur miðil og heilara í Síðdegisútvarpinu þar sem Guðrún setti fram spá sína um þá atburði sem hún sér fyrir sér að muni eiga sér stað á næstu vikum. Í þættinum spáði Guðrún meðal annars fyrir um Náttúruvá, þjóðaratkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið og Þorgerði Katrínu ásamt rannsókn á árásinni á minkabúið í Mosfellsdal. Jafnframt um aukningu á alverlegum glæpum. Hér að neðan er stiklað á stóru um það sem fram kom í spánni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Eldgos og óvenjulegt veður
Áframhaldandi jarðhræringar og eldgos voru meðal þeirra náttúruatburða sem Guðrún Kristín sagði fram undan. Hún taldi jafnframt að óvenjulegt veður gæti valdið samgöngutruflunum og haft áhrif víða um land.
Erlend samtök tengjast minkamálinu
Rannsókn á árásinni á minkabúið í Mosfellsdal var einnig til umræðu. Að mati Guðrúnar Kristínar tengist málið erlendum dýraverndarsamtökum og hún taldi að rannsókninni væri langt frá því að vera lokið. Jafnframt sagði hún mun fleiri sakamál eiga eftir að vekja athygli, þar á meðal ástarsvik, umfangsmikið smyglmál og manndráp.
Seðlabankinn undir erlendum áhrifum
Stýrivextir og verðbólga voru meðal þeirra mála sem Arnþrúður tók upp við Guðrúnu Kristínu. Hún sagði svigrúm Seðlabanka Íslands takmarkast af erlendum áhrifum, nefndi Alþjóðabankann í því samhengi og sagðist ekki eiga von á vaxtalækkun við næstu vaxtaákvörðun, jafnvel að stýrivextir yrðu hækkaðir smávegis.
Þjóðaratkvæðagreiðslan og Þorgerður Katrín
Kosningabaráttan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna var til umræðu. Guðrún Kristín sagði nýjar upplýsingar eiga eftir að koma fram áður en kosið yrði og nefndi Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sérstaklega í því sambandi. Hún taldi jafnframt að „nei“ myndi hafa nauman sigur, að landsbyggðin myndi ráða miklu um úrslitin og Ólafur Ragnar Grímsson ætti eftir að láta meira til sín taka í umræðunni.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
