
Kristján Örn Elíasson ræddi við Gunnar Frey Rúnarsson, formann Víkingaklúbbsins, í þættinum Við skákborðið um fyrirkomulag Íslandsmóts skákfélaga. Gunnar studdi sex liða úrvalsdeildina þegar hún var tekin upp en hefur skipt um skoðun og vill nú sjá 10 lið í efstu deildinni. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Úrvalsdeildin orðin þung
Núverandi úrvalsdeild er skipuð 6 liðum sem mætast tvisvar og tefla því 10 umferðir. Gunnar sagði fyrirkomulagið orðið þungt og krefjandi fyrir félögin og hann væri ekki lengur jafn hrifinn af því og þegar breytingin var gerð.
Hann taldi þó tilraunina hafa verið góða. Áður hafði verið leikið með fleiri liðum og mismunandi fyrirkomulag prófað í gegnum tíðina, meðal annars með það að markmiði að skapa möguleika fyrir skákmenn á að ná áföngum að alþjóðlegum titlum.
Gunnar sér nú ekkert því til fyrirstöðu að breyta kerfinu aftur og segir 10 liða deild vera þann kost sem hann sjálfur myndi velja.
Erfitt fyrir landsbyggðarlið
Kostnaður og álag í úrvalsdeildinni komu einnig til umræðu. Gunnar benti á Akureyri sem dæmi um mjög sterkt félag sem hefði þó ekki alltaf sóst eftir sæti í efstu deildinni.
Úrvalsdeildin geti verið erfið fyrir landsbyggðarlið og félög sem byggja að stórum hluta á áhugamönnum. Ferðalög, liðsskipan og kostnaður geri þátttökuna þyngri en hjá félögum á höfuðborgarsvæðinu.
Þessi staða hefur einnig áhrif á fyrstu deildina. Þar geta sterk A-lið keppt við B-lið félaga úr úrvalsdeild og aðeins ákveðin lið átt möguleika á að komast upp. Gunnar sagði slíkt fyrirkomulag geta orðið snúið og telur stærri efstu deild geta breytt þeirri mynd.
Hann tók þó fram að engin lausn væri gallalaus. Í stærri deildum hefðu B-lið einnig farið upp og niður á milli ára. Þrátt fyrir það stendur 10 liða úrvalsdeild nú upp úr hjá honum sem vænlegasti kosturinn.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
