Háar byggingar geta gleypt dagsbirtuna frá íbúum Hamraborgar

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Ástu Logadóttur, doktor í verkfræði, með sérhæfingu í ljósafræðum og Kolbein Reginsson, líffræðing og hugbúnaðarsmið, í þættinum Skipulagsmál, um áhrif þéttingar byggðar í Hamraborg og Fannborg á þá byggð sem fyrir er. Kolbeinn gagnrýndi umfang uppbyggingarinnar og áhrif háhýsa á núverandi íbúa. Ásta útskýrði að háar byggingar þétt upp við eldri hús gætu skert dagsbirtu verulega enda réðist birtan innandyra ekki aðeins af stærð glugga heldur einnig af því hversu opið væri til himins fyrir utan þá. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Byggðin sem fyrir er skiptir máli

Miklar breytingar hafa verið fyrirhugaðar á Hamraborgar- og Fannborgarsvæðinu með þéttingu byggðar og hærri húsum. Kolbeinn sagði íbúa hafa haft áhyggjur af því hvaða áhrif uppbyggingin hefði á þá sem þegar byggju á svæðinu.

Hæð og þéttleiki nýrra bygginga skipti þar miklu. Hjördís lagði áherslu á að við slíkar breytingar yrði að taka tillit til byggðarinnar sem fyrir væri og þeirra lífsgæða sem íbúar hefðu þegar byggt upp.

Útsýni til himins ræður miklu um dagsbirtuna

Stærð glugga ein og sér segir ekki hversu mikil dagsbirta berst inn í íbúð. Há bygging skammt fyrir utan glugga getur lokað stórum hluta himinsins og þar með dregið verulega úr birtunni innandyra.

Ásta útskýrði að þetta væri ein ástæða þess að nýjar dagsbirtukröfur tækju meira mið af umhverfi bygginga en eldri reglur. Hæð og staðsetning nærliggjandi húsa gætu þannig haft veruleg áhrif á dagsbirtu í þeim íbúðum sem fyrir væru.

Þétt byggð getur takmarkað möguleikana síðar

Nýju dagsbirtukröfurnar eru ekki afturvirkar og ná því ekki sjálfkrafa til bygginga sem þegar hafa verið samþykktar samkvæmt eldri reglum. Það getur skapað vandamál þar sem byggðin hefur þegar verið þétt mikið.

Ásta tók dæmi um að 8 hæða bygging gæti staðið aðeins um 8 metra frá glugga. Við slíkar aðstæður gæti orðið ómögulegt að uppfylla dagsbirtukröfur við síðari breytingar á húsnæðinu. Hún sagði samfélagið geta „læst sig inni“ með því að leyfa of háar byggingar og of mikla þéttingu.

Þess vegna skipti máli að meta áhrif nýrra bygginga á dagsbirtu í nærliggjandi húsum áður en uppbyggingin væri samþykkt. Þegar há og þétt byggð væri risin gæti reynst erfitt eða ómögulegt að bæta úr skertri dagsbirtu síðar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila