
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing og stærðfræðing, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu um breytt stjórnmálaviðhorf og þá hugmyndafræðilegu skiptingu sem lengi hefur einkennt stjórnmálaumræðu. Guðmundur taldi hugtök á borð við hægri, vinstri og kommúnisma hafa misst upprunalega merkingu sína og gömul pólitísk hugtök væru enn notuð þótt samfélagið hefði tekið miklum breytingum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Gömul stjórnmálahugtök lýsa ekki lengur veruleikanum
Guðmundur sagði hugmyndir um kapítalisma og kommúnisma vera orðnar úreltar sem meginviðmið í stjórnmálum. Hann taldi stjórnmálaumræðuna enn mótast af hugtökum sem hefðu haft aðra merkingu fyrir 50 árum en þau hefðu í dag.
Hann nefndi að enn væri algengt að tala um kommúnista, vinstri öfgamenn og hægri öfgamenn án þess að skýrt væri hvað átt væri við.
Arnþrúður sagði pólitíska merkimiða oft notaða til að stimpla fólk fremur en að útskýra afstöðu þess.
Hugtökin notuð í umræðu um Pólland
Arnþrúður tengdi umræðuna við stjórnmálaátökin í Póllandi og nefndi dæmi um hvernig einstaklingar hefðu verið flokkaðir eftir pólitískum hugmyndum áður en nægilegar upplýsingar lægju fyrir.
Hún sagði slíka umræðu einkennast af því að fólk væri fljótt að kalla andstæðinga sína hægri- eða vinstriöfgamenn. Innanríkisráðherra Póllands hefði látið hafa eftir sér að það væri hægri öfgamaður sem hefði staðið að skotárásinni í Kraká fyrir skömmu en hafði síðan þurft að biðjast afsökunar opinberlega á ummælum sínum þegar það var ljóst að árásarmaðurinn var alls ekki hægri öfgamaður, þvert á móti.
Guðmundur taldi þetta sýna hversu takmarkað gagn væri orðið af gömlu hugtökunum þegar fjallað væri um samtímastjórnmál og glæpi.
Umfjöllun um Rússland mótast af gömlum hugmyndum
Guðmundur sagði viðhorf til Rússlands enn mótast af pólitískri orðræðu sem ætti rætur að rekja til tíma Sovétríkjanna. Hann benti á að kommúnistastjórninni hefði lokið árið 1991 en gömul hugtök væru enn notuð í umræðu um landið.
Hann rifjaði upp að hafa sjálfur verið spurður hvort hann væri kommúnisti. Hann sagðist ekki geta svarað slíkri spurningu með einföldum hætti þar sem orðið hefði að hans mati misst skýra merkingu.
Arnþrúður gagnrýndi að fólk sem fjallaði um Rússland frá öðrum sjónarhornum en þeim sem væru ríkjandi í fjölmiðlum fengi stundum á sig stimpilinn „Rússadindlar“. Hún taldi mikilvægt að ólík sjónarmið fengju að koma fram.
Vill endurmeta hefðbundna stjórnmálaskiptingu
Guðmundur taldi að íslenskt samfélag hefði þróast fyrir tilstilli ólíkra stjórnmálahreyfinga sem hefðu hvor með sínum hætti lagt grunn að efnahagslegum framförum og bættum lífskjörum. Hann sagði að hefðbundin skipting í kapítalisma og sósíalisma næði ekki lengur utan um þá þróun.
Hann rifjaði upp mikilvægi samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar í íslenskri stjórnmálasögu. Þar hefðu meðal annars Einar Olgeirsson, Lúðvík Jósepsson og Guðmundur J. Guðmundsson átt stóran þátt í að efla réttindi launafólks og tryggja að efnahagslegar framfarir skiluðu sér til almennings.
Á móti nefndi hann Davíð Oddsson sem fulltrúa þeirrar stjórnmálastefnu sem lagt hefði áherslu á einkaframtak, einkavæðingu og tekjuöflun. Áhrif Davíðs hefðu verið mikil og að sú áhersla á verðmætasköpun hefði gegnt mikilvægu hlutverki í þróun íslensks atvinnulífs.
Hann sagði samspil þessara tveggja hefða, annars vegar félagslegrar samábyrgðar og hins vegar einstaklingsframtaks, hafa verið Íslendingum sérstaklega farsælt. Þannig hefði orðið til blandað hagkerfi þar sem öflugt atvinnulíf og verkalýðshreyfing hefðu hvort tveggja stuðlað að því að ávinningur af virkjunum, tækniframförum og atvinnuuppbyggingu skilaði sér til venjulegs fólks.
Guðmundur taldi því mikilvægt að stjórnmálaumræðan tæki mið af þessu samspili fremur en að halda áfram að flokka hugmyndir og einstaklinga eftir gömlum hugmyndafræðilegum merkimiðum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
