
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Ólafsson, hagfræðing í síðdegisútvarpinu í dag, á Útvarpi Sögu um brotthvarf Harðar Arnarsonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar og framtíð fyrirtækisins. Arnþrúður lýsti áhyggjum af því að breytingar á stjórn Landsvirkjunar og vaxandi áhugi evrópskra orkufyrirtækja gætu leitt til þess að fyrirtækið yrði síðar bútað niður. Guðmundur vakti jafnframt athygli á mögulegum ágreiningi um verðlagningu raforku og hvernig nýta ætti orkuauðlindir landsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Óttast að Landsvirkjun verði skipt upp
Arnþrúður gagnrýndi þá þróun sem hún sér í orkumálum Íslands og varaði við því að Landsvirkjun gæti að lokum verið skipt upp þegar evrópsk fyrirtæki hefðu fengið aukna aðkomu að íslenskum orkumarkaði. Hún benti á að stjórn Landsvirkjunar hefði verið endurnýjuð og að nýir stjórnarmenn fylgdu öðrum áherslum í Evrópumálum en áður. Á sama tíma væri mikill áhugi á íslenskri orku vegna uppbyggingar gagnavera á vegum ESB og áforma um 40 vindorkuver í eigu evrópskra aðila.
Þá vakti hún athygli á að yfir 40 fyrirtæki að undirbúa vindorkuverkefni hér á landi og mörg þeirra frönsk. Með aukinni aðkomu evrópskra fyrirtækja gæti þrýstingur á breytingar á rekstri og skipulagi Landsvirkjunar orðið meiri.
Arnþrúður varaði einnig við því að tengsl Íslands við evrópskan orkumarkað í gegnum EES-samninginn og 3ja orkupakkann gætu leitt til hækkandi raforkuverðs hér á landi.
Óljóst hvers vegna forstjórinn hættir
Brotthvarf Harðar Arnarsonar eftir 17 ár í forstjórastóli Landsvirkjunar vakti margar spurningar. Þótt því hefði verið lýst yfir að enginn ágreiningur lægi að baki ákvörðuninni hafði Guðmundur ekki fengið skýra mynd af ástæðum hennar.
Hann lýsti Landsvirkjun sem einu mikilvægasta fyrirtæki þjóðarinnar og sagði það hafa átt stóran þátt í að bæta lífskjör Íslendinga.
Arnþrúður sagði að ýmsar sögur gengju um hver tæki við starfinu. Þar hefði meðal annars verið nefndur Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri.
Hún fór yfir hæfniskröfur í auglýsingu eftir nýjum forstjóra og vakti sérstaka athygli á því að háskólamenntun sem nýttist í starfinu væri nefnd síðast af tíu skilyrðum, það væri vísbending um að það yrðu ekki fagleg sjónarmið sem réðu ráðningunni. Landsvirkjun væri með undanþágu frá upplýsingalögum og þyrfti því ekki að gefa upplýsingar um ákvarðanir sínar.
Guðmundur gerði góðlátlegt grín að kröfunum og nefndi Ingu Sæland og Jón Gnarr sem dæmi um stjórnmálamenn sem gætu hugsanlega uppfyllt þær kröfur.
Raforkuverð og val á kaupendum
Guðmundur velti fyrir sér hvort ágreiningur um verðlagningu raforku gæti skýrt breytingarnar hjá Landsvirkjun. Raforka væri ekki venjuleg neysluvara þar sem hægt væri að auka framboðið hratt þegar eftirspurn ykist. Því skipti miklu máli hvernig fyrirtækið verðlegði orkuna og hvaða kaupendur fengju aðgang að henni. Hann sagðist halda að Hörður hefði viljað hækka verðið og það hefði verið ágreiningurinn.
Hann nefndi sérstaklega gagnaver og möguleikann á að hækka verð til stórra erlendra orkukaupenda þegar eftirspurn væri mikil.
Hörður ábyrgur stjórnandi
Arnþrúður var ósammála þeirri skýringu á brotthvarfi forstjórans. Hún lýsti Herði sem ábyrgum stjórnanda sem hefði lagt áherslu á að selja orku til fyrirtækja sem gætu skapað verðmæti fyrir íslenskt atvinnulíf. Að hennar mati gæti ágreiningurinn fremur snúist um hvaða erlendu fyrirtæki fengju að kaupa íslenska orku og hvort bandarískir fjárfestar fengju nægilegt svigrúm eða hvort áherslan væri á evrópsk fyrirtæki sem væru í orkuskorti nú þegar.
Arðgreiðslur Landsvirkjunar gætu orðið hluti af fjárhagsáætlun ríkisins
Arnþrúður nefndi einnig þann möguleika að breytingarnar tengdust fjárþörf ríkissjóðs og fyrirheitum ríkisstjórnarinnar um hallarlaus fjárlög. Með því að láta Landsvirkjun taka lán á hagstæðum kjörum væri hægt að auka arðgreiðslur til ríkisins og nota fjármunina til að mæta útgjöldum og skuldum ríkissjóðs. Bætti Arnþrúður því við að það kynni Dagur B. því slíkt hefði hann gert þegar hann hafi verið borgarstjóri samanber lántökur hans frá árinu 2014 til 2024.
Guðmundur beindi hins vegar sjónum að rekstrarstefnunni og þeim ákvörðunum sem þyrfti að taka um sölu raforku til stórra fyrirtækja.
Verður Landsvirkjun nýtt af Evrópusambandinu?
Arnþrúður gagnrýndi sérstaklega að pólitísk sjónarmið um tengsl Íslands við Evrópusambandið kynnu að hafa áhrif á framtíð Landsvirkjunar.
Hún varaði við því að breytingar á stjórnun fyrirtækisins gætu orðið upphafið að umfangsmeiri breytingum á íslenskum orkumarkaði, þar sem erlendir fjárfestar fengju aukin áhrif og Landsvirkjun missti þá stöðu sem fyrirtækið hefði haft í íslensku atvinnulífi og gagnvart heimilum í landinu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
