Hættur við að styðja Höllu Hrund

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar:

Mér varð á í messunni þegar ég setti inn færslu um stuðning við Höllu Hrund Logadóttur, að vísu að því tilskildu að hún myndi ekki beita sér gegn virkjunum ef hún kæmist í stólinn.

Nú hefur mér verið sýnt efni sem sýnir að konan er einmitt á móti orkuvinnslu þó að hún sé náttúruvæn. Það þýðir að stuðningur minn við hana var byggður á misskilningi og er því dreginn til baka. Sá eini sem unnt er að styðja er því eftir sem áður Arnar Þór Jónsson.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila