Hafa þarf augun opin á austur byggð Reykjavíkur ef Krýsuvíkurkerfið fer af stað

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Pál Einarsson, jarðeðlisfræðing og Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðing, í þættinum Skipulagsmá, um sprunguhættu á höfuðborgarsvæðinu. Páll vakti sérstaklega athygli á byggðinni við Rauðavatn þar sem sprungusveimur Krýsuvíkureldstöðvakerfisins liggur inn í Reykjavík og sagði að það þyrfti að hafa augun opin með austur byggð borgarinnar þegar næsti stóratburður yrði í kerfinu. Engar vísbendingar væru um slíkan atburð. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Sprungusveimurinn nær inn í Reykjavík

Sprungusveimur Krýsuvíkureldstöðvakerfisins liggur frá Krýsuvík til norðausturs um Heiðmörk og Elliðavatn og nær inn í Reykjavík við Rauðavatn.

Byggðin sunnan og norðan Rauðavatns er því innan sprungusveimsins. Við skipulag hverfisins sunnan Rauðavatns var tekið tillit til þriggja þekktra sprungna og hús reist á milli þeirra.

Þegar ekið er fram hjá Rauðavatni má sjá svæði þar sem engin hús standa vegna sprungnanna.

Páll sagði þó vafasamt að aðeins þessar 3 sprungur væru á svæðinu. Fleiri sprungur gætu verið þar og því væri ekki útilokað að einhver mannvirki hefðu verið reist yfir sprungur sem ekki hefðu verið kortlagðar með sama hætti.

Vöktunin nær yfir sprungusveiminn

Hjördís spurði Benedikt hvernig hægt væri að fylgjast með hreyfingum á svo umfangsmiklu sprungusvæði.

Jarðskjálftamælar þurfa ekki að standa beint á sprungunum til að nema skjálfta. GPS-mælingar eru hins vegar notaðar til að fylgjast með breytingum á jarðskorpunni og mælar eru staðsettir þannig að hægt sé að greina hvernig sprungusveimurinn opnast og aflagast í heild.

Ekki er hægt að setja mæli á hverja einustu sprungu enda eru þær mjög margar.

Engar vísbendingar um yfirvofandi atburð

Benedikt lagði áherslu á að engar vísbendingar væru um að stór atburður væri að hefjast í Krýsuvíkurkerfinu á næstunni.

Krýsuvík er þó virk eldstöð. Þar mælist skjálftavirkni og reglulegar landbreytingar og því þarf stöðuga vöktun.
Ef veruleg virkni færi af stað í kerfinu ætti mælikerfið að sýna einhvern aðdraganda, meðal annars með kvikuhreyfingum, skjálftum og aflögun jarðskorpunnar.

Ekki sé hins vegar hægt að segja fyrir um hvenær slíkt tímabil hefjist eða hvort það verði á líftíma þeirra sem nú eru uppi.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila